
Iðan fræðslusetur

MIG/MAG suða
Lærðu grunnatriði MIG/MAG-suðu og öðlastu hagnýta verklega færni til að framkvæma helstu suðuaðferðir af öryggi og fagmennsku.
Fyrir hverja:
Námskeiðið hentar öllum sem vilja öðlast grunnþekkingu í MIG/MAG-suðu, jafnt byrjendum sem þeim sem vilja uppfæra eldri kunnáttu. Sérstaklega gagnlegt fyrir iðnaðarmenn, verkstæðisstarfsmenn og nýliða í málmvinnu.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum bóklega og verklega undirstöðu í MIG/MAG-suðu og gera þá hæfa til að framkvæma einfaldar suður með réttum tækjum, efnum og verklagi.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Grunnatriði rafmagnsfræðinnar sem tengjast suðu
- Undirbúning og meðhöndlun málma fyrir og eftir suðu
- Stillingu suðuvéla, val á réttu suðugasi og mat á gasflæði
- Suðu á stúfsuðum og kverksuðum með MIG/MAG aðferð
- Öryggisatriði á vinnustað og notkun hlífðarbúnaðar
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta framkvæmt einfaldar MIG/MAG-suður með réttum búnaði
- Þekkja helstu stillingar og verklag
- Geta nýtt öryggisbúnað og fylgt vinnureglum
- Hafa hagnýta reynslu af MIG/MAG tækni
Aðrar upplýsingar:
Kennari fylgist náið með þátttakendum og veitir endurgjöf. Nauðsynleg tæki, tól og hlífðarbúnaður eru á staðnum. Stafræn viðurkenning er veitt fyrir þátttöku.
Hefst
26. okt. 2026Tegund
StaðnámTímalengd
2 skiptiDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur
Slagregnsprófun á ísetningu glugga
Iðan fræðsluseturStaðnám27. okt.
Grunnnámskeið í CABAS
Iðan fræðsluseturStaðnám27. okt.
Varðveisla eldri húsa
Iðan fræðsluseturStaðnám23. okt.
Endurmenntun atvinnubílstjóra - Umferðaröryggi
Iðan fræðslusetur24. okt.
PAGO byggingarsteinar
Iðan fræðsluseturStaðnám22. okt.
Frágangur varnarlaga með SIGA-efnum
Iðan fræðsluseturStaðnám23. okt.
Raunkostnaður útseldrar þjónustu
Iðan fræðsluseturStaðnám21. okt.
Grunnnámskeið í Bluebeam Revu
Iðan fræðsluseturStaðnám22. okt.