

Endurmenntun atvinnubílstjóra - Umferðaröryggi
Fyrir hverja:
Alla bílstjórar með réttindi í flokkum C, C1, D og D1 sem vilja viðhalda atvinnuréttindum sínum. Þetta námskeið flokkast undir hlutann öryggi.Hér geta bílstjórarar skoðað sína stöðu gagnvart námskeiðum. Ef engin námskeið birtast, eru engin námskeið í gildi eða hafa ekki verið skráð af námskeiðshöldurum. Atvinnubílstjórar sem aka bílum í flokkum C, C1, D og D1 þurfa að að ljúka fimm endurmenntunarnámskeiðum á síðustu fimm árum fyrir endurnýjun til að fá tákntöluna 95 í skírteinið sitt. 95 tákntalan gerir bílstjórum kleift að starfa við akstur innan EES svæðisins. Frekari upplýsingar má nálgast á vef Samgöngustofu
Markmið:
Markmiðið er að bílstjórinn þekki vegakerfið og helstu hættur sem eru til staðar eða geta skapast í tengslum við ytri aðstæður, s.s. við mismunandi veðurskilyrði. Einnig að hann þekki helstu tegundir og orsakir umferðar- og vinnuslysa og þekki aðferðir við slysavarnir.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Umferðarslys, orsakir og afleiðingar
- Öryggi stærri bifreiða, ný tækni og framtíðin
- Umferðaraðstæður á Íslandi
- Akstur í jarðgöngum
- EuroRAP
- Hættuleg efni
- Akstur í slæmu veðri
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Vera meðvitaður um helstu orsakir slysa og tölfræði tengd slysum
- Þekkja öryggisbúnað stærri bifreiða
- Þekkja umferðaraðstæður á íslandi
- Þekkja grunn viðbragð við umferðarslysum
- Geta metið hvort veður sé öruggt fyrir akstur
Aðrar upplýsingar:
Námskeiðið er kennt bæði í stofu og í streymi á netinu.