Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Framtíð vörumerkjastaðla

Björgvin Pétur Sigurjónsson, prentsmiður og hönnunarstjóri hjá Jökulá, fjallar um þróun og framtíð vörumerkjastaðla.

Fyrir hverja:

Vinnusmiðjan hentar grafískum miðlurum, markaðsfólki, hönnuðum, vörumerkjastjórum, samskiptafulltrúum og öllum sem koma að uppbyggingu og viðhaldi vörumerkja í stafrænum og prentuðum miðlum.

Markmið:

Að veita þátttakendum innsýn í þróun vörumerkjastaðla og hvernig fyrirtæki geta tryggt samræmda og öfluga framsetningu vörumerkis síns þrátt fyrir síbreytilegt miðlunarumhverfi.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Hvernig vörumerkjastaðlar eru að þróast í takt við aukna stafræna miðlun.
  • Leiðir til að viðhalda samræmi í vörumerkjaframsetningu yfir ólíkar miðlunarleiðir.
  • Algeng mistök og áskoranir sem fyrirtæki standa frammi fyrir.
  • Tengsl prentunar og vörumerkjastjórnunar.
  • Hvað mun einkenna sterk og samkeppnishæf vörumerki í framtíðinni.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Skilja mikilvægi vörumerkjastaðla í nútíma markaðsumhverfi.
  • Geta greint helstu áskoranir við samræmda vörumerkjastjórnun.
  • Hafa betri yfirsýn yfir hvernig prentaðir og stafrænir miðlar vinna saman að sterkri vörumerkjaupplifun.
  • Þekkja lykilatriði sem munu móta þróun vörumerkja á komandi árum.

Aðrar upplýsingar:

Létt hádegissnarl í boði.

Hefst
21. okt. 2026
Tegund
Staðnám og fjarnám
Tímalengd
1 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar