
Iðan fræðslusetur

Svansvottaðar byggingar
Námskeið fyrir þau sem eru eða ætla að byggja svansvottaðar byggingar.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er fyrir iðnmeistara, byggingarstjóra og aðra sem ætla að byggja eða gerast ábyrgðarmenn Svansvottaðra bygginga.
Markmið:
Tilgangur þess er að fræða þátttakendur um ferlið og hvað þarf að gera til þess að fá nýbyggingu Svansvottaða.
Meginmarkmiðið er að nemendur öðlist þekkingu á áherslum Svansins og þeim kröfum sem settar eru til að draga úr umhverfisáhrifum byggingarframkvæmda, sporna við hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra seirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og íbúa byggingarinnar á notkunartíma.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Hugmyndafræði Svansins og helstu áherslur.
- Afhverju vottunarferlið skiptir máli.
- Skyldukröfur, valkröfur, efnisskráningar, utanumhald gagna, úttektir og fleira.
- Hvernig staðið er að Svansvottaðri framkvæmd.
- Hlutverk mismunandi aðila sem koma að verkefninu.
- Viðmiðaskjalið og hvernig eigi að nota það.
- Hvaða gögnum þarf að skila inn hvenær.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja hugmyndafræði Svansins.
- Þekkja kröfur sem gerðar eru til Svansvottaðra nýbygginga.
- Vita hver er ábyrgð framkvæmdaraðila.
- Kunna skil á byggingarferli Svansvottaðra nýbygginga.
- Vita hvaða gögn þurfa að liggja fyrir og hvernig eigi að skila þeim af sér.
Annað:
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Svaninn á Íslandi.
Hefst
14. okt. 2026Tegund
StaðnámTímalengd
1 skiptiDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur
Endurmenntun atvinnubílstjóra - Lög og reglur
Iðan fræðsluseturFjarnám14. okt.
Brunaþéttingar
Iðan fræðsluseturStaðnám14. okt.
Slagregnsprófun á ísetningu glugga
Iðan fræðsluseturStaðnám14. okt.
Öryggis- og lokaúttekt - skil á gögnum
Iðan fræðslusetur13. okt.
Hefðbundinn stjórnbúnaður hitakerfa
Iðan fræðsluseturStaðnám13. okt.
Verkstjóri í iðnaði – ábyrgð og verksvið
Iðan fræðsluseturStaðnám13. okt.
Ostanámskeið með Bjarka Long
Iðan fræðsluseturStaðnám09. okt.