Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Slagregnsprófun á ísetningu glugga

Námskeið fyrir alla sem setja glugga í steinsteypt hús og ganga frá þéttingum og vilja komast að því hvort að þéttingar haldi vatni.

Fyrir hverja:

Þetta er námskeið fyrir alla sem setja glugga í hús og þétta með þeim.

Markmið:

Markmið með námskeiðinu er að fræða þátttakendur um örugga þéttingu við ísetningu glugga og hurða og kenna þeim einfalda aðferð til að slagregnsprófa þá.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Kröfur um eiginleika glugga í íslenskri byggingarreglugerð og merkingu hugtakanna tveggja þrepa þétting, rakaflæði, rakastreymi o.s.frv.
  • Þéttingu á ísetningu glugga við ýmsar aðstæður með ólíkum efnum.
  • Námskeiðið byggir á forsendum þess sem kemur fram á síðunni www.hansen.is
  • Á námskeiðinu verða gerðar prófanir og mælingar í sérstökum kennslutækjum þar sem hægt er að framkalla stórviðri og sjá hvernig mismunandi þéttingar standast álagið.
  • Að lokum verður framkvæmt slagregnspróf á glugga í steyptum vegg við aðstæður sambærilegar byggingarstað.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Kunna skil á helstu kröfum sem gerðar eru til glugga í stöðlum og reglugerðum.
  • Þekkja grundvallaratriði tveggja þrepa þéttingar og hvernig hún er framkvæmd á byggingarstað.
  • Geta slagregnsprófað glugga á byggingarstað skv. þeirri aðferðafræði sem kennd er á námskeiðinu.

Annað:

Í lok námskeiðs framkvæma þátttakendur sjálfir slagregnspróf á þéttleika á gluggaísetningu.

Hefst
14. okt. 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
1 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar