Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Endurmenntun atvinnubílstjóra - Lög og reglur

Þarft þú að endurnýja réttindi þín til atvinnuaksturs ?

Fyrir hverja:

Alla bílstjórar með réttindi í flokkum C, C1, D og D1 sem vilja viðhalda atvinnuréttindum sínum. Þetta námskeið flokkast undir hlutann öryggi.Hér geta bílstjórarar skoðað sína stöðu gagnvart námskeiðum. Ef engin námskeið birtast, eru engin námskeið í gildi eða hafa ekki verið skráð af námskeiðshöldurum. Atvinnubílstjórar sem aka bílum í flokkum C, C1, D og D1 þurfa að að ljúka fimm endurmenntunarnámskeiðum á síðustu fimm árum fyrir endurnýjun til að fá tákntöluna 95 í skírteinið sitt. 95 tákntalan gerir bílstjórum kleift að starfa við akstur innan EES svæðisins. Frekari upplýsingar má nálgast á vef Samgöngustofu

Markmið: 

Markmiðið er að bílstjórinn þekki helstu atriði í lögum og reglum um vöru- og farþegaflutninga og um stór ökutæki sem atvinnutæki og geri sér grein fyrir ábyrgð bílstjóra á ástandi og notkun ökutækis á hverjum tíma.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Aksturs og hvíldartíma
  • Ökuritar og notkun þeirra
  • Lög og reglur um farþega- og farmflutninga
  • Starfsumhverfi farþega- og farmflutninga
  • Stofnanir umferðarmála, stefnumótun og skipulag
  • Ábyrgð og skyldur bílstjóra og flutningsaðila

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja til tilskipunar ESB
  • vera meðvitaður um aksturs- og hvíldartíma
  • þekkja helstu lög og reglur sem snerta farþega- og farmflutninga
  • þekkja hesltu stofnanir umferðarmála sem koma að stefnumótun og skipulagi greinarinnar
  • vera meðvitaður um þá ábyrgð og skyldur sem bílstjóri og flutningsaðilar bera

Aðrar upplýsingar:

Námskeiðið er eingöngu kennt í streymi á netinu.

Hefst
14. okt. 2026
Tegund
Fjarnám
Tímalengd
1 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar