Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Brunaöryggi við byggingaframkvæmdir

Námskeið fyrir iðnaðarmenn og verktaka sem standa í byggingaframkvæmdum og vilja koma í veg fyrir eldsvoða við þær.

Fyrir hverja:

Þetta námskeið er fyrir alla sem standa í byggingaframkvæmdum og vilja tryggja að koma í veg fyrir eldsvoða við þær.

Markmið:

Markmið þess er að fara yfir það sem skiptir mestu máli þegar kemur að brunavörnum bygginga á framkvæmdatímanum. 

Á námskeiðin verður fjallað um:

  • Hönnunargögn brunavarna, hvaða gögn þurfa að liggja fyrir.
  • Deilihönnun á brunavörnum, gögn og frágangur.
  • Ábyrgð verktaka á brunavörnum á framkvæmdatíma
  • Hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að lokaúttekt
  • Ábyrgð mismunandi aðila á mismunandi þáttum
  • Þjónustusamningar og þjónustuaðilar
  • Brunavarnir í öryggis- og heilbrigðisáætlun framkvæmda.
  • Brunaþéttingar á framkvæmdatíma.
  • Rýmingaráætlanir og flóttaleiðir á framkvæmdatíma.
  • Aðkoma slökkviliðs á framkvæmdatíma

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja ábyrgð sína á brunavörnum við framkvæmdir.
  • Kunna að standa að nauðsynlegum brunavörnum á framkvæmdatíma.
Hefst
20. okt. 2026
Tegund
Staðnám og fjarnám
Tímalengd
1 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar