Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Hinn fullkomni G&T – Bragð, jafnvægi og sköpun

Þátttakendur kynnast uppruna og þróun þessa klassíska drykkjar og læra hvernig nútímalegar aðferðir hafa mótað ólíkar útfærslur hans. Á námskeiðinu læra þátttakendur að skapa sinn eigin Gin & Tonic með því að vinna með samspil gins, tóniks, jurtakeima og skreytinga. Áhersla er lögð á bragð, jafnvægi og rétta samsetningu til að skapa hinn fullkomna Gin & Tonic.

Fyrir hverja:

Námskeiðið hentar bæði byrjendum sem vilja öðlast dýpri skilning á Gin & Tonic sem og þeim sem hafa þegar grunnþekkingu en vilja efla færni sína, smakkhæfni og innsýn í mismunandi gin-stíla og framreiðslu drykkjarins.

Objective:

Markmið námskeiðsins er að kynna helstu gin-fjölskyldur og einkenni þeirra, þróa skynræna nálgun að Gin & Tonic og sýna hvernig hlutföll drykkjarins og val á skreytingum sem móta bragð, jafnvægi og heildarupplifun. Þátttakendur eru hvattir til að treysta eigin skynfærum og þróa persónulegan skilning á drykknum.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Smökkun á fimm vandlega völdum ginum úr þremur gin-fjölskyldum
  • Muninn á London Dry, Contemporary og Navy Strength ginum
  • Samanburð á ginum innan sama flokks og hvernig stíll mótar bragð
  • Áhrif hlutfalls gins og tóniks á bragð, styrkleika og áferð drykkjarins
  • Notkun hefðbundinna og óhefðbundinna skreytinga og hvernig þau hafa áhrif á heildarupplifun drykkjarins

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta greint á milli helstu gin-stíla
  • Skilja hvernig gin innan sama flokks geta haft ólíka karaktera
  • Geta aðlagað hlutföll gins og tóniks eftir æskilegri bragðupplifun
  • Nota skreytingar á réttann hátt til að styðja við jafnvægi og karakter Gin & Tonic

Aðrar upplýsingar:

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Jacek Rudecki. Jacek er sérfræðingur í viskíi og sterkum drykkjum með víðtæka reynslu úr drykkja- og veitingageiranum. Hann býr yfir öflugri alþjóðlegri fagmenntun og sérhæfingu á sviði viskís, sterkra drykkja og eimingar, meðal annars WSET Level 3 Award in Spirits, Certified Scotch Professional, General Certificate in Distilling og EBS Instructor Academy.

Hann er stofnandi Áfengisstofnunar, sjálfstæðs fræðslufyrirtækis sem sérhæfir sig í smökkunum, fagþjálfun og fræðslu um viskí og aðra sterka drykki.

Jacek hefur fjölbreytta starfsreynslu úr drykkja- og veitingageiranum, meðal annars við barstjórnun, eimingu, fræðslu og þjónustu.

Hefst
30. okt. 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
1 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar