
Iðan fræðslusetur

Gæðastjórnun í byggingariðnaði
Námskeið sem ætlað er iðnmeisturum og minni fyrirtækjum sem starfa sem undirverktakar og/eða einyrkjar í bygginga- og mannvirkjagerð.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið er ætlað minni fyrirtækjum og iðnmeisturum sem starfa sem undirverktakar og/eða einyrkjar í bygginga- og mannvirkjagerð.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að kynna grundvallaratriði og kröfur til gæðakerfa skv mannvirkjalögum og byggingarreglugerð og að þátttakendur öðlist skilning á þeim.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Kröfur til gæðakerfa í lögum og reglugerðum.
- Gerð og uppsetingu á einföldu gæðakerfi.
- Kröfur í virkniskoðun gæðakerfa.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Hafa skilning á grunnatriðum gæðakerfa.
- Vera kominn með grunn að eigin gæðakerfi.
- Hafa þekkingu til að geta klárað gæðakerfi sitt sjálfur.
Annað:
Á námskeiðinu munu þátttakendur vinna verkefni samhliða kennslunni, þ.e. að að vinna í gæðakerfi eða setja upp sitt eigið. Þátttakendur þurfa því að vera með eigin tölvu.
Þegar kemur að gæðakerfum er engin ein leið rétt, einfaldleiki er lykilatriði og að það virki fyrir þig og þína starfssemi. Í umhverfi sívaxandi opinberra krafa er gott og einfalt gæðakerfi farið að skipta sífellt meira máli.
Hefst
28. okt. 2026Tegund
StaðnámTímalengd
1 skiptiDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur
TIG suða
Iðan fræðsluseturStaðnám28. okt.
MIG/MAG suða
Iðan fræðsluseturStaðnám26. okt.
Grunnnámskeið í þjónustu
Iðan fræðsluseturStaðnám27. okt.
Lagning þakpappa
Iðan fræðsluseturStaðnám28. okt.
Slagregnsprófun á ísetningu glugga
Iðan fræðsluseturStaðnám27. okt.
Grunnnámskeið í CABAS
Iðan fræðsluseturStaðnám27. okt.
Varðveisla eldri húsa
Iðan fræðsluseturStaðnám23. okt.
Endurmenntun atvinnubílstjóra - Umferðaröryggi
Iðan fræðslusetur24. okt.
PAGO byggingarsteinar
Iðan fræðsluseturStaðnám22. okt.
Frágangur varnarlaga með SIGA-efnum
Iðan fræðsluseturStaðnám23. okt.