
Iðan fræðslusetur

Ofnæmi, óþol og sérfæði í faglegri matargerð
Á þessu hagnýta og fræðandi námskeiði fá þátttakendur aukinn skilning á ofnæmis- og óþolsvöldum í matvælum, mismunandi sérfæði og mikilvægi réttrar meðferðar og merkinga matvæla.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað matreiðslumenntuðu starfsfólki og öðrum sem starfa við undirbúning, meðferð eða framreiðslu matvæla, hvort sem er í skólum, leikskólum, mötuneytum, velferðarþjónustu, heilbrigðisstofnunum eða öðrum starfsstöðvum þar sem tekið er tillit til sérþarfa neytenda.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu þátttakenda á helstu ofnæmis- og óþolsvöldum, sérfæði og mismunandi næringarþörfum. Áhersla er lögð á örugga meðferð matvæla, lestur innihaldslýsinga og hvernig velja má hentug hráefni til að tryggja bæði öryggi og næringargildi máltíða.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Helstu ofnæmis- og óþolsvalda og hvar þá er að finna
- Matvæli og hráefni sem hægt er að nota í stað algengra ofnæmisvalda
- Sérfæði (t.d. fæði fyrir sykursjúka, vegan- og grænmetisfæði, Kosher og Halal)
- Lestur og túlkun innihaldslýsinga og merkinga matvæla
- Krossmengun og örugg vinnubrögð í eldhúsi
- Norrænar ráðleggingar um næringu og ráðleggingar Embættis landlæknis
- Næringarþarfir ólíkra hópa og hvernig tryggja má jafnvægi í máltíðum fyrir einstaklinga með sérþarfir
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Þekkja helstu ofnæmis- og óþolsvalda í matvælum
- Geta lesið og túlkað innihaldslýsingar á öruggan hátt
- Skilja grunnatriði mismunandi sérfæðis og næringarþarfa ólíkra hópa
- Geta valið viðeigandi hráefni og komið í veg fyrir krossmengun
- Stuðla að öruggu, faglegu og næringarríku matarumhverfi
Hefst
3. nóv. 2026Tegund
StaðnámTímalengd
1 skiptiDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur
Hinn fullkomni G&T – Bragð, jafnvægi og sköpun
Iðan fræðsluseturStaðnám30. okt.
HACCP kröfur um hreinlæti við lagnavinnu
Iðan fræðslusetur29. okt.
Sólpallar og skjólgirðingar
Iðan fræðsluseturStaðnám29. okt.
Flökun og meðhöndlun á fisk
Iðan fræðsluseturStaðnám29. okt.
Hnífabrýnsla
Iðan fræðsluseturStaðnám28. okt.
TIG suða
Iðan fræðsluseturStaðnám28. okt.
Gæðastjórnun í byggingariðnaði
Iðan fræðsluseturStaðnám28. okt.
MIG/MAG suða
Iðan fræðsluseturStaðnám26. okt.
Grunnnámskeið í þjónustu
Iðan fræðsluseturStaðnám27. okt.
Lagning þakpappa
Iðan fræðsluseturStaðnám28. okt.
Slagregnsprófun á ísetningu glugga
Iðan fræðsluseturStaðnám27. okt.
Grunnnámskeið í CABAS
Iðan fræðsluseturStaðnám27. okt.