Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

HACCP 1 – Hreinlæti og örugg meðferð matvæla

Gæði og öryggi – alla leið Hagnýtt og mikilvægt grunnnámskeið fyrir alla sem meðhöndla matvæli í starfi sínu.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað öllum sem koma að meðhöndlun, framleiðslu, geymslu eða framreiðslu matvæla. Það hentar starfsfólki í eldhúsum, veitingarekstri, mötuneytum, bakaríum, matvælaframleiðslu og verslun, sem og stjórnendum og ábyrgðaraðilum á sviði matvælaöryggis.

Markmið:

Að auka þekkingu og skilning þátttakenda á helstu hættum í matvælaframleiðslu og kenna hvernig tryggja má matvælaöryggi með góðum starfsháttum og innra eftirliti samkvæmt HACCP-kerfinu.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Helstu hættur í matvælaframleiðslu, þar á meðal örverur, ofnæmisvalda og mengun
  • Rétta meðferð, móttöku og geymslu matvæla, hitastig og rekjanleika
  • Forvarnir gegn krossmengun og röngum vinnubrögðum
  • Persónulegt hreinlæti, þrif og þrifaáætlanir
  • Innra eftirlit, ábyrgðarskiptingu og hlutverk starfsfólks og stjórnenda

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Skilja grundvallaratriði HACCP og hlutverk þess í matvælaöryggi
  • Þekkja helstu áhættur í meðhöndlun matvæla
  • Beita góðum starfsháttum í daglegu starfi
  • Draga úr líkum á matarsýkingum og krossmengun
  • Taka virkan þátt í innra eftirliti á vinnustað
Hefst
3. nóv. 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
1 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar