Skíðasvæðið í Stafdal
Skíðasvæðið í Stafdal
Skíðasvæðið í Stafdal

Ýmis hlutastörf á skíðasvæðinu í Stafdal

Ýmis störf á skemmtilegasta skíðasvæði landsins!

Laus eru til umsóknar ýmis hlutastörf við skíðasvæðið í Stafdal.
Vinna í skemmtilegu umhverfi og sem hluti af frábæru teymi yfir vetrarvertíðina.

Um er að ræða fólk á troðara og lyftuverði. Þjálfun verður veitt eftir þörfum.
Athugið að unnið er að mestu seinni part dags og um helgar.

Leitað er að aðilum með reynslu, áhuga og drifkraft til þess að vinna að því að gera skíðasvæðið enn betra en það er í dag.

Næsti yfirmaður er forstöðumaður skíðasvæðisins. Um tímavinnu er að ræða og ráðningartími frá janúar - maí 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta og aðstoð við notendur.
  • Sala á aðgangskortum.
  • Leiga á skíðum og öðrum búnaði.
  • Troðsla á skíðasvæðinu.
  • Undirbúningur svæðis að hausti.
  • Viðhald troðara og lyftu.
  • Að öryggiskröfum skíðasvæða sé fullnægt.
  • Samskipti við notendur svæðisins.
  • Lyftuvarsla, eftirlit með lyftum og önnur störf sem þarf að sinna.

 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Færni í mannlegum samskiptum, góð samstarfshæfni og jákvætt viðmót.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og drifkraftur.
  • Hæfni til að bregðast við óvæntum aðstæðum og vilji til að taka þátt í breytingum.
  • Geta og réttindi til troðslu.
  • Kunnátta í skyndihjálp er kostur.
  • Reynsla af vinnu með vinnuvélar og reynsla af viðgerðum og viðhaldi tækjabúnaðar kostur.
  • Bílpróf kostur.
  • Hreint sakavottorð.
  • Ástríða fyrir útivist mikill kostur.
Fríðindi í starfi

Frítt vetrarkort í lyftuna

Auglýsing birt23. október 2025
Umsóknarfrestur16. nóvember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Stafdalur, Fjarðarheiði
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SkíðiPathCreated with Sketch.Skyndihjálp
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar