

Yfirverkfræðingur rafveitu
Norðurál leitar að öflugum og ábyrgum einstaklingi í starf yfirverkfræðings rafveitu. Eitt af megin hlutverkum yfirverkfræðings rafveitu er að reka og bera ábyrgð á að rafbúnaður verksmiðjunnar uppfylli kröfur samkvæmt lögum og reglum. Verkefnin eru áhugaverð og krefjandi í lifandi starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.
Starfið heyrir undir tæknisvið fyrirtækisins.
· Ábyrgð, rekstur og umsjón rafveitu
· Ráðgjöf, tæknilegur stuðningur og þátttaka í áætlanagerð við breytingar, viðgerðir, nýsmíði eða nýfjárfestingar
· Þátttaka í stefnumótun og uppbyggingu gæðakerfis
· Vera leiðandi í uppbyggingu, viðhaldi og þróun há- og lágspennudreifikerfa
· Verkefnastýring með stærri rekstrarverkefnum
· Umsjón með mannauðsmálum deildar
· Meistarapróf í rafmangsverkfræði á sterkstraumsviði
· Reynsla af starfi við háspennu
· Leiðtogahæfni og reynsla af stjórnun
· Frumkvæði og fagleg vinnubrögð
· Metnaður og sterk öryggisvitund
· Jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
· Skipulagsfærni og metnaður fyrir umbótum og gæðum











