

Áreiðanleikafræðingur
Norðurál leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf áreiðanleikafræðings. Eitt af megin hlutverkum áreiðanleikafræðings er að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum til að halda bilunum í lágmarki með það að markmiði að auka áreiðanleika búnaðar með öryggi, skilvirkni og hagkvæmni að leiðarljósi. Verkefnin eru áhugaverð og krefjandi í lifandi starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.
Starfið heyrir undir tæknisvið fyrirtækisins.
· Gerð fyrirbyggjandi viðhaldsáætlana fyrir framleiðslubúnað
· Rýni á viðhaldskerfi til að greina tækifæri til umbóta
· Greining gagna, skýrslugerð og tölfræðileg úrvinnsla
· Þróun lykilmælikvarða
· Rótargreiningar á bilunum í búnaði
· Tæknilegur stuðningur við undirbúning og lokaúttektir á nýjum búnaði
· Gæðaeftirlit og tæknilegur stuðningur við verkáætlanadeild og viðhaldsteymi
· Háskólamenntun á sviði verk- eða tæknifræði
· Sveinspróf í raf- eða vélvirkjun kostur
· Þekking á SAP tölvukerfi er kostur
· Góð tölfræðikunnátta og greining gagna
· Sterk öryggisvitund, frumkvæði og fagleg vinnubrögð
· Jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar
· Skipulagsfærni og metnaður fyrir umbótum og gæðum











