Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.
Vinna á frábærum stað
Íbúðakjarninn Barðastöðum 35 leitar að jákvæðum og metnaðarfullum stuðningsfulltrúa til starfa.
Á Barðastöðum er þéttur, skemmtilegur, kraftmikill og samheldinn starfsmannahópur sem tekur vel á móti nýju fólki.
Starfið er fjölbreytt þar sem leitast er við að mæta þörfum og óskum íbúa hverju sinni. Rík áhersla er á teymisvinnu til að tryggja framúrskarandi gæðaþjónustu til íbúanna. Unnið er eftir hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsagnar. Starf stuðningsfulltrúa byggir á stefnu Reykjavíkurborgar um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum.
Starfshlutfall er 100% með blönduðum vöktum, morgun, kvöld og helgarvaktir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hlutverk stuðningsfulltrúa er að styðja og aðstoða íbúa við allar athafnir daglegs lífs. Í því felst að gera íbúum kleift að búa á eigin heimili, stunda vinnu og njóta menningar og félagslífs.
- Stuðningsfulltrúi aðstoðar við framkvæmd einstaklingaáætlana í samráði við einstaklinga og ábyrgðaraðila.
- Veitir aðstoð við meðferð fjármuna í samráði við einstaklinga og stjórnendur. Hann tekur þátt í fundum og teymisvinnu. sem tengjast starfinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn menntun.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
- Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Bílpróf er nauðsynlegt.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Auglýsing birt17. október 2024
Umsóknarfrestur3. nóvember 2024
Staðsetning
Barðastaðir 35, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (7)
Hey! Laust starf í skemmtilegum íbúðakjarna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Deildarstjóri á íbúðarkjarna fyrir geðfatlaða í Laugardal
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Teymisstjóri á íbúðarkjarna í Breiðholtinu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Stuðningsráðgjafi í nýjan íbúðakjarna á Laugavegi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Spennandi starf stuðningsfulltrúa í búsetukjarna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Fjölbreytt og spennandi starf stuðningsfulltrúa í Bríetartún
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Spennandi framtíðarstarf þroskaþjálfa
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)
Starfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær
Hey! Laust starf í skemmtilegum íbúðakjarna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
50% NPA staða - 3-5 dagar í mánuði
Forréttindi
Ungur maður óskar eftir aðstoðarmanni
NPA þjónusta
Starf á skammtímaheimili fatlaðra
Kópavogsbær
Teymisstjóri á íbúðarkjarna í Breiðholtinu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Starfsfólk í búsetu í Langagerði
Ás styrktarfélag
Stuðningsráðgjafi í nýjan íbúðakjarna á Laugavegi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
NPA aðstoðarkona - (50-70% starf í vaktavinnu)
NPA Aðstoð
Spennandi starf stuðningsfulltrúa í búsetukjarna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Aðstoðarmenn óskast í umönnun sem fyrst.
NPA Setur Suðurlands ehf.
Fjölbreytt og spennandi starf stuðningsfulltrúa í Bríetartún
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið