
Terra Einingar
Terra Einingar búa yfir áratuga reynslu af sölu og leigu á húseiningum sem hægt er að setja saman á ótal vegu og skapa rými allt eftir þörfum viðskiptavina. Einnig býður Terra Einingar uppá geymslulausnir í formi geymslugáma fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Höfuðstöðvar Terra Eininga er á Hringhellu 6 í Hafnarfirði þar sem öll þjónusta og framleiðsla fer fram.

Viðskiptastjóri
Ert þú drífandi í sölu, með sterka þjónustulund, gott auga fyrir tækifærum og metnað til að skara fram úr? Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig. Við óskum eftir öflugum viðskiptastjóra til starfa fyrir Terra Einingar og Öryggisgirðingar. Starfið er fjölbreytt og snýr að verkefnaöflun, ráðgjöf, eftirfylgni og uppbyggingu viðskiptasambanda í nánu samstarfi við teymi beggja fyrirtækja.
Terra Einingar bjóða húseiningar og geymslulausnir í fjölbreyttum stærðum og gerðum, með mikla möguleika á samsetningu eftir þörfum viðskiptavina.
Öryggisgirðingar bjóða heildarlausnir á girðingum, hliðum og aðgangskerfum, með fjölbreyttu vöruúrvali fyrir stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vera á vettvangi, hitta viðskiptavini og byggja upp ný viðskiptatækifæri með markvissum heimsóknum og samtölum.
- Sala og verkefnaöflun: finna nýja viðskiptavini, útbúa tilboð, semja og loka samningum.
- Ráðgjöf og þarfagreining fyrir viðskiptavini, t.d. um húseiningar/geymslulausnir og girðingar/hlið/aðgangskerfi.
- Umsjón með núverandi viðskiptavinum; rækta og styrkja viðskiptasambönd með framúrskarandi þjónustu.
- Skráning og utanumhald sölumála í kerfum og regluleg skýrslugjöf um stöðu og framvindu.
- Samvinna um tæknilegar útfærslur og lausnir í nánu samstarfi við söluteymi og verkstjórn/uppsetningarteymi.
- Tryggja faglega afhendingu og góða upplifun viðskiptavina í gegnum allt ferlið.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi, háskólamenntun er kostur
- Reynsla af sölu og þjónustu; reynsla á B2B markaði er kostur.
- Drifkraftur til að sækja verkefni og ná árangri, ásamt hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
- Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og skapandi nálgun.
- Skýr og fagleg framsetning í ræðu og riti; sterk samskiptafærni.
- Hæfni til að læra hratt og tileinka sér nýja hluti.
- Góð skipulagsfærni og eftirfylgni.
- Góð almenn tölvukunnátta.
Fríðindi í starfi
- Starf hjá fyrirtækjum í mikilli sókn með góðum vaxtartækifærum.
- Góðan starfsanda og sterkt teymi.
- Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að þróast í starfi.
- Samkeppnishæf laun.
- Heilsustyrk.
- Fræðslu og endurmenntun (Terra skólinn).
- Niðurgreiddan heitan mat í hádeginu.
- Frítt að hlaða rafmagnsbíl.
Auglýsing birt12. febrúar 2026
Umsóknarfrestur28. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hringhella 6, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiDrifkrafturFljót/ur að læraFrumkvæðiMannleg samskiptiMetnaðurÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Vilt þú starfa með okkur í sumar?
VÍS

Öflugur bókari óskast til HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Þjónusturáðgjafi
Alþjóðasetur

ICEWEAR Garn óskar eftir starfsfólki í Fullt starf/hlutastarf
ICEWEAR

Verkefnastjóri á Alþjóðasviði HR
Háskólinn í Reykjavík

Sölufulltrúi í Skútuvogi
Slippfélagið ehf

Verkefnastjóri í teymi stefnu og árangurs
Samgöngustofa

Viðskiptastjóri lykilviðskiptavina á fyrirtækjasviði
Síminn

Forstöðumaður sölu og viðskiptastýringar á fyrirtækjasviði Símans
Síminn

Fyrirtækjaráðgjafi Símans
Síminn

Við erum að ráða í fjármáladeild Deloitte
Deloitte

Sölumaður / Bílasali
Bílasalan Toppbílar