
Samgöngustofa
Samgöngustofa er stjórnsýslustofnun samgöngumála sem annast eftirlit með flugi, siglingum og umferð. Á hverjum degi erum við að læra hvert af öðru og sinna viðskiptavinum af kostgæfni með það að markmiði að verða betri og betri.

Verkefnastjóri í teymi stefnu og árangurs
Samgöngustofa óskar eftir að ráða metnaðarfullan og faglegan verkefnastjóra í teymi stefnu og árangurs. Leitað er að einstaklingi með reynslu af verkefnastjórnun og umbótastarfi sem hefur áhuga á að innleiða stefnu, efla verkefnastjórnun og styrkja gagnadrifna ákvarðanatöku innan stofnunarinnar. Starfið hentar vel þeim sem vilja leiða krefjandi verkefni, bæta heildarsýn á rekstur og vinna náið með stjórnendum og starfsfólki að því að styrkja framkvæmd og árangur Samgöngustofu.
Starfshlutfall er 100%.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Innleiða og fylgja eftir stefnumótun og markmiðasetningu Samgöngustofu.
- Verkefnastýra stærri verkefnum innan stofnunarinnar og tryggja heildstæða, samhæfða og árangursríka framkvæmd þeirra.
- Innleiða og styðja við verkefnastjórnun með skýrum ferlum, verkfærum og fræðslu.
- Greina umbótatækifæri og leiða breytingar í samstarfi við stjórnendur og gæða- og umbótadeild.
- Skilgreina og viðhalda árangursvísum sem endurspegla stefnu og markmið stofnunarinnar og tryggja að rekstur og ákvarðanataka byggi á áreiðanlegum og traustum gögnum.
- Stuðla að markvissri nýtingu gagna í umbótaverkefnum og þróun stefnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í verkefnastjórnun, viðskiptafræði, verkfræði, opinberri stjórnsýslu eða tengdum greinum. Gerð er krafa um BA/BS gráðu.
- Reynsla af verkefnastjórnun, þar á meðal að leiða og stýra verkefnum af mismunandi stærð og flækjustigi.
- Reynsla eða þekking á stefnumótun og innleiðingu stefnu.
- Frumkvæði, sjálfstæði og hæfni til að vinna að umbótum í samstarfi við stjórnendur og starfsfólk.
- Hæfni til að vinna með árangursvísa og mælikvarða, skilja hlutverk þeirra í árangursstjórnun og meta niðurstöður í samhengi við rekstur og markmið.
- Mjög góð samskipta- og samstarfsfærni og hæfni til að vinna þvert á teymi og svið.
Við leitum að einstaklingi sem…
- er lausnamiðaður og áhugasamur um að þróa og efla starfsemi,
- hefur sterka hæfni í samstarfi og getur byggt upp traust og gott samstarf,
- hefur áhuga á að koma að mótun og framkvæmd stefnu á breiðum grunni,
- vill leggja sitt af mörkum til að styrkja stjórnun og árangur Samgöngustofu.
Auglýsing birt12. febrúar 2026
Umsóknarfrestur23. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Öflugur bókari óskast til HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Sérfræðingur í markaðsmálum
Aðalskoðun hf.

Verkefnastjóri á Alþjóðasviði HR
Háskólinn í Reykjavík

Deildarfulltrúi við LHÍ
Listaháskóli Íslands

Viðskiptastjóri
Terra Einingar

Bókari
Vínbúðin

Verkefnastjóri á skrifstofu málefna fatlaðs fólks
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sala og skipulagning skyndihjálpar
Rauði krossinn á Íslandi

Útskriftarprógramm Arion
Arion banki

Verkstjóri
TILDRA Byggingafélag ehf.

Yfirverkstjóri í Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar
Kópavogsbær

Sérfræðingur á fræðslu- og upplýsingasvið
Alþýðusamband Íslands