Listaháskóli Íslands
Listaháskóli Íslands
Listaháskóli Íslands

Deildarfulltrúi við LHÍ

Listaháskóli Íslands leitar að áreiðanlegri manneskju með góða samskiptahæfni og þjónustulund í starf deildarfulltrúa við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Um fullt starf er að ræða.

Listaháskóli Íslands er leiðandi í sköpun og miðlun þekkingar í listum, eflir listræna fagmennsku og er í fararbroddi við þróun almennrar menntastefnu í listum. Listaháskólinn er hreyfiafl í síbreytilegum heimi og gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu sem eini háskólinn á fræðasviði lista á Íslandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skráning námskeiða og uppsetning kennsluskrár í Uglu
  • Umsjón með nemendaskráningu
  • Umsjón með umsóknum og skipulag á inntöku nýnema
  • Umsjón með útskriftarferli nemenda
  • Þjónusta, upplýsingamiðlun og samskipti við nemendur
  • Þátttaka í ýmsum verkefnum og viðburðum á vegum deildar og skóla

Deildarfulltrúar allra deilda LHÍ starfa innan námsþjónustu og mynda sameiginlegt teymi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Áreiðanleiki og góð hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnu
  • Góð almenn tölvukunnátta 
  • Þekking á Uglu og Canvas er kostur
  • Þjónustulund, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð yfirsýn, skipulagsgeta og lausnamiðað viðhorf
Auglýsing birt9. febrúar 2026
Umsóknarfrestur24. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skipholt 31, 105 Reykjavík
Stakkahlíð 1, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar