
BAUHAUS slhf.
BAUHAUS er staðsett í 22.000 m2 vöruhúsi í Reykjavík og eru yfir 120.000 vörunúmer á vöruskrá.
BAUHAUS er byggingavöruverslanakeðja með yfir 300 verslanir víðsvegar um Evrópu og meira 20.000 starfsmenn. BAUHAUS er vaxandi fyrirtæki í verslun og þjónustu á Íslandi og leggur sig fram við að skapa gott umhverfi fyrir starfsfólk.
Hjá BAUHAUS á Íslandi starfa yfir 120 manns og er markmið þeirra að bjóða viðskiptavinum sínum upp á mikið vöruúrval, faglega þekkingu og góða þjónustu.
Stoðir BAUHAUS eru mikið úrval, gæði og lágt verð.
Markmið BAUHAUS er að vera eftirsóknarverður vinnustaður þar sem öll njóta jafnra tækifæra í starfi. Við hvetjum öll áhugasöm til þess að sækja um laus störf eða senda okkur almenna umsókn, óháð kyni og bakgrunni.

Sumarstarf á Fyrirtækjasviði BAUHAUS!
Ert þú með góða þjónustulund, öguð vinnubrögð og hefur gaman af samskiptum við fólk? Ef svo er, þá gætum við verið að leita af þér!
BAUHAUS óskar eftir að ráða öflugan einstakling í sumarstarf sem söluráðgjafa á Fyrirtækjasviði BAUHAUS!
Söluráðgjafi fyrirtækjasviðs ber ábyrgð á að veita viðskiptavinum BAUHAUS faglega og fyrsta flokks þjónustu. Um er að ræða spennandi sumarstarf á Fyrirtækjasviði BAUHAUS.
Við leitumst eftir einstakling í fullt starf, alla virka daga á tímabilinu apríl til ágúst 2026 einnig fullt starf, alla virka daga á tímabilinu júlí til ágúst 2026 ✨
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala til fyrirtækja- og viðskiptavina
- Símasala til fyrirtækja- og viðskiptavina
- Upplýsingagjöf til viðskiptavina, þ.m.t sending hreyfingalista, reikninga og afgreiðsluseðla
- Tilboðsgerð til fyrirtækja- og viðskiptavina í samræmi við gildandi viðmið
- Tryggja sendingu pantana til fyrirtækja- og viðskiptavina
- Tiltekt á pöntunum
- Eftirfylgni með samskiptum/tilboðum til fyrirtækja- og viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla úr þjónustustarfi
- Hæfni í samskiptum og rík þjónustulund
- Sjálfstæð vinnubrögð, skipulag og frumkvæði
- Áhugi og metnaður til að ná árangri í starfi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Öguð vinnubrögð
Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lambhagavegur 2-4 2R, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaAlmenn tæknikunnáttaMannleg samskiptiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaÞjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi í þjónustuver Starfsmannafélags Kópavogs
Starfsmannafélag Kópavogs

FJÖLBREYTT SKRIFSTOFUSTARF
Fjárfestinga- og fasteignafyrirtæki í 101 Reykjavík

Sumarstarf - Þjónustumiðja Vinnueftirlitsins
Vinnueftirlitið

Sumarstarfsmaður
Örninn

Starfsfólk óskast í íþróttamiðstöðvar
Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar

Starfsmaður í fataverkefni - tímabundið starf
Fatasöfnun Rauða krossins

Umsjón áætlunarrúta
Trex Travel Experiences

Starfsmaður í verslun - Byko Grandi
Byko

Timburafgreiðsla - BYKO Suðurnes
Byko

Verslunarstörf í Vík / General staff in Vík
Penninn Eymundsson

Innheimtufulltrúi á fjármálasviði
Travel Connect

Söluráðgjafi varahluta
Fastus