Fastus
Fastus
Fastus

Söluráðgjafi varahluta

Fastus leitar að öflugum og lausnamiðuðum einstaklingi í fjölbreytt og spennandi verkefni á tæknideild fyrirtækisins. Starfið felur í sér sölu, ráðgjöf og afgreiðslu varahluta, gerð verðútreikninga og frágang varahluta, auk pantana og innkaupa. Í starfinu þarf einnig að sinna eftirfylgni með ábyrgðarviðgerðum og virk samskipti við viðskiptavini, birgja og samstarfsfólk.

Viðkomandi mun koma til með að starfa í fjölbreyttu og lifandi umhverfi með öflugu teymi. Um er að ræða 100% starf á dagvinnutímabilinu 08:00 - 16:00.

Eingöngu er tekið við umsóknum og fyrirspurnum í gegnum Alfreð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala, ráðgjöf og afgreiðsla varahluta
  • Verðútreikningar og frágangur á varahlutum
  • Pantanir og innkaup á varahlutum
  • Eftirfylgni með ábyrgðarviðgerðum
  • Samskipti og þjónusta við viðskiptavini, birgja og samstarfsfólk
  • Almenn tölvupóstsamskipti
  • Símsvörun
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leitað er að jákvæðum einstaklingum sem er sjálfstæðir, skipulagðir og eiga auðvelt með mannleg samskipti
  • Gott frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hæfni til að vinna undir álagi
  • Almenn þekking á landbúnaðar- og vinnuvélum telst mikill kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð samskiptafærni á íslensku og ensku
Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur19. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Höfðabakki 7, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.BilanagreiningPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar