
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík undirbýr samfélagið fyrir framtíðina. Við stöndum framarlega á alþjóðavísu í að skapa og miðla þekkingu með siðferði, jafnræði og sjálfbærni að leiðarljósi.
Háskólinn er hreyfiafl í þróun atvinnulífs og samfélags, með virku samstarfi og menntun sem mætir þörfum þeirra.
Háskólinn býður framúrskarandi nám, stuðning og starfsaðstöðu. Hann styrkir nemendur í að byggja brýr á milli fræðigreina, tengir þau við atvinnulíf og býður upp á námsleiðir sem hægt er að sníða að eigin hæfni og áhugasviðum. Í rannsóknarstarfi leggur háskólinn áherslu á samvinnu, skapandi hugsun og heilindi.
Háskólinn er driffjöður nýsköpunar í gegnum hagnýtingu rannsókna og þjálfun fyrir alla nemendur. Sjálfbærni er undirliggjandi þáttur í námi, rannsóknum og rekstri háskólans.

Verkefnastjóri á Alþjóðasviði HR
Háskólinn í Reykjavík óskar eftir að ráða verkefnastjóra á Alþjóðasvið HR í fullt starf. Á Alþjóðasviði starfa nú þrír einstaklingar í leit að þeim fjórða til þess að gera teymið okkar enn öflugra. Í boði er spennandi og fjölbreytt starf í metnaðarfullu og lifandi háskólaumhverfi þar sem alþjóðlegt samstarf, fagleg umsýsla og teymisvinna eru í fyrirrúmi.
Kjarnaverkefni
- Stuðningur við erlenda nemendur sem koma í nám til Íslands - visa, dvalarleyfi, undirbúningur fyrir flutning, móttaka og inngilding
- Umsýsla Erasmus+ styrkja
- Umsýsla blandaðra námskeiða ásamt teymi (Blended Intensive Programmes)
- skipulag og utanumhald styttri nemendadvala
- samstarf við deildir og erlenda samstarfsaðila
- stuðningur við móttöku, ferla og framkvæmd
- Teymisvinna með öðrum verkefnatjórum skrifstofunnar hvað varðar ráðgjöf og umsýslu skiptináms nemenda
- Þátttaka í erlendu samstarfi (samstarfsnet, ráðstefnur og móttaka erlendra gesta)
- Skipulagning viðburða á vegum alþjóðasviðs ásamt ásamt teymi
- Önnur tilfallandi verkefni á alþjóðasviði
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Mjög góð færni í ensku og íslensku bæði í töluðu og rituðu máli.
- Reynsla af alþjóðasamstarfi og fjölmenningarleg færni
- Mikil skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Gott vald á upplýsingatækni
- Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Geta til að vinna sjálfstætt sem og í teymi
- Sveigjanleiki, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
- Reynsla af skiptinámi eða þekking á Erasmus+ menntaáætlun Evrópusambandsins er kostur
Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf 1. maí. Með öllum umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.
Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðlaug Matthildur Jakobsdóttir, forstöðukona Alþjóðasviðs HR, [email protected] eða mannauðsdeild HR, [email protected]
Auglýsing birt12. febrúar 2026
Umsóknarfrestur25. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Sjálfstæð vinnubrögðSkipulagÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri á Heimili fyrir börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Hvernig hafa húsin okkar það?
FSRE

Verkefnastjóri í Mannauðslausnum
Advania

Þjónustufulltrúi á skrifstofu á Seyðisfirði
Mannauðs- og þjónustusvið

Sérfræðingur Þjónustumiðju
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Vanur bókari óskast
Tölvutek

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Verkefnastjóri hönnunar
FSRE

Áhafnavakt/Daily Crew Operations
Icelandair

Civil Society Fund Transnational Officer, Uppbyggingarsjóður EES
Financial Mechanism Office (FMO)