
Sérfræðingur í markaðsmálum
Aðalskoðun leitar að öflugum sérfræðingi í markaðsmálum
Aðalskoðun er traust og vaxandi fyrirtæki á sviði skoðunarþjónustu. Við leggjum áherslu á fagmennsku, áreiðanleika og framúrskarandi þjónustu. Nú leitum við að metnaðarfullum sérfræðingi í markaðsmálum sem vill taka virkan þátt í að styrkja vörumerki fyrirtækisins og styðja við áframhaldandi vöxt.
Um starfið
Um er að ræða lykilhlutverk í markaðs- og kynningarmálum fyrirtækisins. Viðkomandi mun bera ábyrgð á stefnumótun og framkvæmd markaðsaðgerða með skýra áherslu á árangur, sýnileika og viðskiptavöxt.
Helstu verkefni
- Mótun og framkvæmd markaðsstefnu
- Umsjón með stafrænum markaðsmálum (vefsíða, samfélagsmiðlar, auglýsingaherferðir o.fl.)
- Greining á markhópum og mæling á árangri markaðsaðgerða
- Vörumerkjastjórnun og ímyndaruppbygging
- Skipulagning og framkvæmd herferða og kynningarverkefna
- Samvinna við stjórnendur og starfsfólk um innri og ytri samskipti
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi (t.d. markaðsfræði, viðskiptafræði eða sambærilegt)
Reynsla af markaðsstarfi með áherslu á stafrænum markaðsmálum
Góð greiningarfærni og skilningur á árangursmælingum
Framúrskarandi samskiptahæfni og sjálfstæð vinnubrögð
Frumkvæði, skipulagshæfni og metnaður til að ná árangri
Reynsla af hönnun auglýsinga er kostur
Við bjóðum
Fjölbreytt starf í traustu fyrirtæki
Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun og vöxt fyrirtækisins
Góðan starfsanda og faglegt umhverfi
Fjölskylduvænan vinnutíma (08:00–16:00)
Hlutastarf kemur til greina
Hjá Aðalstoðun starfa um 40 manns, þar starfa færir einstaklingar sem njóta góðrar þjálfunar og aðbúnaðar við sín störf. Opnunartími skoðunarstöðva og skrifstofu er frá kl 8:00-16:00 og er því vinnutími starfsfólks mjög fjölskylduvænn.
Íslenska
Enska










