Alþýðusamband Íslands
Alþýðusamband Íslands
Alþýðusamband Íslands

Sérfræðingur á fræðslu- og upplýsingasvið

Leitað er að kraftmiklum og jákvæðum aðila með brennandi áhuga á málefnum verkalýðshreyfingarinnar, sterka samskiptahæfni og faglegan metnað.

Svið fræðslu og upplýsingar ber ábyrgð á fræðslu, upplýsingagjöf og miðlun á vettvangi sambandsins. Sviðið sinnir félagslegri fræðslu með það að markmiði að styrkja kjörna fulltrúa, starfsmenn og trúnaðarmenn stéttarfélaga á vinnumarkaði og styður við stefnumótun hreyfingarinnar á sviði mennta- og fræðslumála, meðal annars í gegnum samstarf við málefnanefndir miðstjórnar. Jafnframt rekur sviðið Félagsmálaskóla alþýðu í samstarfi við BSRB.

Miðlunarhluti sviðsins annast útgáfu, kynningarstarf og upplýsingamiðlun ASÍ. Þar undir falla samskipti við fjölmiðla, innri og ytri miðlun, rekstur vef- og samfélagsmiðla ASÍ, framkvæmd viðburða, ásamt umsjón með gagnagrunnum og tæknibúnaði sviðsins.

Gerð er krafa um frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til að vinna í teymi. Mikil áhersla er lögð á góða hæfni í mannlegum samskiptum, skýra tjáningu í ræðu og riti og faglega nálgun í öllum verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla á námskeiðum 

  • Námsefnisgerð 

  • Utanumhald og skipulag námskeiða 

  • Kynningarmál 

  • Stefnumótun á sviði mennta og fræðslumála 

  • Samskipti við erlend systursamtök og alþjóðasamtök stéttarfélaga 

  • Samskipti við skrifstofur aðildarfélaga og landssambanda 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í kennslufræðum eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfið 

  • Reynsla af fullorðinsfræðslu 

  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti   

  • Faglegur metnaður og frumkvæði 

  • Gott vald á ensku og einu Norðurlandamáli 

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð 

  • Góð samskiptafærni 

  • Miðlun efnis á samfélagsmiðlum 

Auglýsing birt4. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
DanskaDanska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar