Alþýðusamband Íslands
Alþýðusamband Íslands
Alþýðusamband Íslands

Sviðstjóri fræðslu- og upplýsingasviðs ASÍ

Leitað er að kraftmiklum og jákvæðum stjórnanda með brennandi áhuga á málefnum verkalýðshreyfingarinnar, sterka samskiptahæfni og faglegan metnað.

Fræðslu og upplýsingasvið ber ábyrgð á fræðslu, upplýsingagjöf og miðlun á vettvangi sambandsins. Sviðið sinnir félagslegri fræðslu með það að markmiði að styrkja kjörna fulltrúa, starfsmenn og trúnaðarmenn stéttarfélaga á vinnumarkaði og styður við stefnumótun hreyfingarinnar á sviði mennta- og fræðslumála, meðal annars í gegnum samstarf við málefnanefndir miðstjórnar. Jafnframt rekur sviðið Félagsmálaskóla alþýðu í samstarfi við BSRB.

Miðlunarhluti sviðsins annast útgáfu, kynningarstarf og upplýsingamiðlun ASÍ. Þar undir falla samskipti við fjölmiðla, innri og ytri miðlun, rekstur vef- og samfélagsmiðla ASÍ, framkvæmd viðburða, ásamt umsjón með gagnagrunnum og tæknibúnaði sviðsins.

Starf sviðstjóra felur í sér faglega forystu og ábyrgð á starfsemi sviðsins, þróun þess og verkefnum, ásamt nánu samstarfi við miðstjórn ASÍ, forystu aðildarsamtaka og aðra lykilaðila. Gerð er krafa um frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til að vinna í teymi. Mikil áhersla er lögð á góða hæfni í mannlegum samskiptum, skýra tjáningu í ræðu og riti og faglega nálgun í öllum verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mótun og þróun á starfsemi sviðsins, þar á meðal frumkvæði að nýjungum og stefnumótun. 

  • Umsjón með kynningar- og upplýsingamiðlun, þar á meðal frétta- og greinarskrif, samfélagsmiðla, fréttabréfi og auglýsingum. 

  • Ábyrgð á heimasíðu og öðrum miðlum ASÍ, þar sem áhersla er lögð á að kynna starfsemi og efni á markvissan hátt. 

  • Skipulag, utanumhald og kynning námskeiða, ásamt kennslu og gerð námsefnis. 

  • Kynningar og fræðsla, meðal annars í framhaldsskólum og í samstarfi við ASÍ-UNG. 

  • Samskipti og samstarf við aðildarfélög, landssambönd, innlenda og erlenda samstarfsaðila, þar á meðal systursamtök og alþjóðasamtök stéttarfélaga. 

  • Ábyrgð á fjárhagsáætlunum Félagsmálaskólans 

  • Verkefnastjórnun og framkvæmd kynningar- og fræðsluverkefna. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, svo sem í kennslufræðum, fjölmiðlun, eða öðrum skyldum greinum, og/eða sambærileg reynsla. 

  • Reynsla af stjórnun og/eða verkefnastjórnun. 

  • Reynsla af fjölmiðlun og fullorðinsfræðslu æskileg. 

  • Mjög góð færni í textaskrifum og miðlun efnis, þar á meðal á samfélagsmiðlum. 

  • Auðvelt með að tjá sig skýrt og faglega í ræðu og riti. 

  • Gott vald á íslensku, ensku og einu norðurlandamáli. 

  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og reynsla af samstarfi við ólíka hópa. 

  • Frumkvæði, faglegur metnaður og sjálfstæð, skipulögð vinnubrögð. 

Auglýsing birt4. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
DanskaDanska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar