

Sviðstjóri félags- og vinnumarkaðssviðs
Leitað er að metnaðarfullum og framsýnum einstaklingi sem er kraftmikill, jákvæður og faglegur, með brennandi áhuga á hagsmunamálum launafólks. Umsækjandi þarf að sýna frumkvæði í starfi, vera góður í mannlegum samskiptum og búa yfir sterkum stjórnunar- og skipulagshæfileikum.
Félags- og vinnumarkaðssvið sinnir greiningum og úttektum á félags- og vinnumarkaðsmálum og styður við starfsemi og stefnumótun hreyfingarinnar, meðal annars í gegnum samstarf við málefnanefndir miðstjórnar. Undir sviðið falla fjölbreyttir málaflokkar, þar á meðal vinnumarkaðs- og velferðarmál, afkomu- og atvinnuleysistryggingar, vinnumarkaðsúrræði, heilbrigðismál, húsnæðismál, jafnrétti og inngilding, auk áherslu á réttlát umskipti.
Starf sviðstjóra felur meðal annars í sér rannsóknir og greiningar á framangreindum málaflokkum, auk þess að vinna að stefnu sambandsins í nánu samstarfi við miðstjórn ASÍ og forystu aðildarsamtaka. Mikilvægt er að viðkomandi geti starfað sjálfstætt, sýni faglegan metnað og eigi jafnframt auðvelt með að vinna í teymi.
ASÍ leggur áherslu á að ráða einstakling sem sameinar faglega þekkingu, frumkvæði og hæfni í samskiptum, og er tilbúinn að leggja sitt af mörkum til öflugrar og framsækinna hreyfingar.
-
Stjórnun og fagleg forysta sviðsins, ásamt umsjón og ábyrgð á verkefnum þess.
-
Rannsóknir, greiningar og úttektir á félags-, vinnumarkaðs- og velferðarmálum, þar á meðal úrvinnsla hagtalna og tölfræðilegra gagna.
-
Ritun umsagna fyrir hönd ASÍ.
-
Stuðningur við stefnumótun ASÍ og þróun á sviði félags- og vinnumarkaðsmála.
-
Virkt samstarf og samskipti við aðildarfélög, landssambönd, málefnanefndir og aðra hagaðila, innanlands og á alþjóðavettvangi.
-
Frumkvæði að þróun, nýjungum og eflingu starfs sviðsins.
-
Háskólapróf í hagfræði, vinnumarkaðsfræði eða annarri menntun sem nýtist í starfinu. Framhaldsmenntun er æskileg.
-
Reynsla af stjórnun og skipulagi verkefna.
-
Góð þekking á tölfræði og hæfni í útreikningum og úrvinnslu tölulegra gagna.
-
Gott vald á ensku og einu norðurlandamáli.
-
Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Frumkvæði, faglegur metnaður og sjálfstæð vinnubrögð.
-
Auðvelt með að tjá sig í ræðu og riti.
-
Brennandi áhugi á félags- og vinnumarkaðsmálum.
Enska
Danska
