
Slippfélagið ehf
Slippfélagið var stofnað í marsmánuði 1902 og er næst elsta starfandi hlutafélag landsins. Í upphafi einskorðaðist starfsemin við skipaviðgerðir og tengd verkefni en árið 1951 hóf félagið framleiðslu á málningu. Félagið selur flestar gerðir málningar s.s. húsamálningu og viðarvörn. Í umhverfismálum er stefna félagsins að sem flestar vörur þess séu umhverfisvænar og því eykst sífellt framboð þess á slíkum vörum. Vörur félagsins eru seldar hjá samstarfsaðilum þess allt í kringum landið.
Fyrirtækið var eitt fyrst íslenskra fyrirtækja til að setja sér sérstaka stefnu í umhverfismálum. Í daglegum rekstri er reynt eftir fremsta megni að uppfylla stefnu félagsins í umhverfismálum. Það er meðal annars gert með að skipta út hættulegum efnasamböndum og síðast en ekki síst með ráðgjöf til viðskiptavinar. Dæmi um það sem hefur áunnist á undanförnum árum er stóraukin notkun umhverfisvænna vatnsþynnanlegra málningarefna. Grænt bókhald er síðan notað sérstaklega til að meta hvernig til tekst hverju sinni.
Sölufulltrúi í Skútuvogi
Slippfélagið leitar að metnaðarfullum sölufulltrúa í fullt starf í verslun okkar Skútuvogi. Vinnutími er 8-16 og/eða 8-18 alla virka daga og 10-14 annan hvern laugardag. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn afgreiðsla og ráðgjöf
- Vöruframsetning og áfylling
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund
- Lipurð í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
- Frumkvæði
- Tölvukunnátta
- Reynsla af afgreiðslustörfum og/eða málningarvörum kostur
- Góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt12. febrúar 2026
Umsóknarfrestur28. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skútuvogur 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaFrumkvæðiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Vilt þú starfa með okkur í sumar?
VÍS

ICEWEAR Garn óskar eftir starfsfólki í Fullt starf/hlutastarf
ICEWEAR

Lyfja Selfossi - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Fyrirtækjaráðgjafi Símans
Síminn

Meiraprófsbílstjóri /sölumaður
Kjörís ehf

Sölumaður / Bílasali
Bílasalan Toppbílar

Leikskólinn Seljakot - mötuneyti
Skólamatur

Viðskiptastjóri
Terra Einingar

Tjaldverðir Akureyri/ Campwarden Akureyri
Hamrar, útilífsmiðstöð skáta Akureyri

Bílabúðin / Stál og stansar – sölufulltrúi
Bílabúðin / Stál og stansar ehf.

Afgreiðsla í fiskbúð
Fylgifiskar ehf

Bætiefnabúllan - Fullt starf í verslun (100%)
Bætiefnabúllan