Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Verkfræðingur á sviði brúarhönnunar

Laust er til umsóknar starf verkfræðings á sviði brúarhönnunar á hönnunardeild Vegagerðarinnar. Hönnunardeild tilheyrir Mannvirkjasviði og getur starfsstöð verið í Garðabæ eða á Akureyri. Vegagerðin gegnir lykilhlutverki í þróun, skipulagi, hönnun, framkvæmd og rekstri samgöngumannvirkja um land allt.

Á þjóðvegakerfinu eru tæplega 1200 brýr og framundan eru fjölbreytt og spennandi verkefni við nýbyggingu, breikkun og viðhald brúa víðs vegar um landið. Leitað er að lausnamiðuðum einstaklingi með menntun eða reynslu og brennandi áhuga á sviði burðarþolshönnunar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun nýrra brúarmannvirkja
  • Hönnun viðhaldsaðgerða núverandi brúa 
  • Burðargetumat brúa
  • Gerð verklýsinga    
  • Þróun verklags til aukinnar skilvirkni í hönnun brúa
  • Mat á kolefnisspori 
  • Gerð leiðbeininga um hönnun brúa
  • Rýni hönnunar og verklýsinga
  • Þátttaka í rannsóknarverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Verkfræðingur, með menntun á sviði burðarþols
  • Reynsla af hönnun brúa æskileg
  • Reynsla af notkun hönnunarforrita á sviði burðarþols
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu 
  • Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni 
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli, kunnátta í norðurlandamáli kostur
Auglýsing birt5. mars 2026
Umsóknarfrestur23. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Miðhúsavegur 1, 600 Akureyri
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar