COWI
COWI
COWI

Samgönguverkfræðingur í hönnunarstjórn Borgarlínu

Vilt þú verða hluti af alþjóðlegu fyrirtæki og takast á við áhugaverð verkefni? Hefur þú brennandi áhuga á samgöngum sem stuðla að auknum afköstum, vistvænna umhverfi og bættri lýðheilsu? Viltu fá tækifæri til að þróast í starfi innan fjölbreytts hóps sérfræðinga hérlendis og erlendis?

Helstu verkefni og ábyrgð

Við hjá COWI á Íslandi leitum að reyndum samgönguverkfræðingi til að bætast í hóp samgangna hjá COWI á Íslandi og vinna í hönnunarstjórn Borgarlínu sem er hluti af verkefnastjórnunarteyminu sem staðsett er á Verkefnastofu Borgarlínu í Hafnarstræti. Verkefnastjórnunarteymi Borgarlínu leiðir hönnunarteymin sem vinna að frumdrögum, forhönnun og verkhönnun Borgarlínu. Unnið er að öllum lotum Borgarlínu. Hlutverk hönnunarstjórnar er að tryggja að hönnunin uppfylli kröfur um gæði, tíma og kostnað. Einnig að tryggja samræmi hönnunar á milli hönnunarteyma, á milli lota, við aðlæg verkefni, við hönnunarleiðbeiningar og við upplýsingar og kröfur frá hagaðilum.

Helstu verkefni sem þú munt fást við

  • Samskipti við hönnunarteymi Borgarlínu og hagaðila. 
  • Yfirfara hönnunargögn frá hönnunarteymum Borgarlínu. 
  • Vinna að uppfærslum hönnunarleiðbeininga Borgarlínu. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Samgönguverkfræðingur M.Sc. 
  • A.m.k. 8 ára reynsla af for- og verkhönnun gatna og stíga. 
  • A.m.k. 2 ára reynsla af hönnunarstýringu gatna- og stígaverkefna. 
  • Reynsla af hönnun og/eða hönnunarstýringu veituverkefna kostur. 
  • Góð enskufærni er skilyrði og íslenskukunnátta er mikill kostur.  
  • Jákvætt viðhorf og frumkvæði í starfi. 
  • Góðir samskiptahæfileikar. 
  • Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð. 
Fríðindi í starfi

Við bjóðum líka uppá

  • Sveigjanlegan vinnutíma og fjarvinnumöguleika samhliða vinnu á starfsstöð.
  • Samgöngu- og líkamsræktarstyrki.
  • Starfsmannafélag með fjölbreyttum viðburðum yfir árið.
  • Viðbótargreiðslur í fæðingarorlofi.
  • Starfsþróunarmöguleika innan COWI, starfsþróunaráætlanir og rafræna þjálfun hjá COWI Academy.
  • Árlegt heilsufarsmat.
Auglýsing birt4. mars 2026
Umsóknarfrestur24. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Urðarhvarf 6, 203 Kópavogur
Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar