Brunnur Ventures
Brunnur Ventures

Fjármála- og rekstrarstjóri

Brunnur Ventures GP leitar að metnaðarfullum og faglegum einstaklingi í fjölbreytt og krefjandi starf fjármála- og rekstrarstjóra með ábyrgð á daglegum rekstri og áhættustýringu fyrir sjóði í umsjón félagsins. Hluti starfsins felst í því að vinna með félögum í eignasafni og þá sérstaklega verkefnum sem snúa að fjármálum. Einnig gefst einstakt tækifæri að vinna með teymi Brunns í að greina viðskiptatækifæri og hafa raunveruleg áhrif á uppbyggingu fyrirtækja sem stefna á alþjóðlegan markað.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með daglegum rekstri sjóðsins, bókhaldi og skýrslugerð.
  • Samband við endurskoðendur og þjónustuaðila, tryggja að skýrslur og uppgjör séu fullnægjandi.
  • Undirbúningur og skil á lögbundnum skýrslum til eftirlitsaðila.
  • Samskipti við hluthafa, innkallanir áskriftarloforða og útgreiðslur.
  • Áhættustýring í samvinnu við ráðgjafa.
  • Eftirfylgni með fjárfestingum í eignasafni sjóðanna.
  • Annað sem til fellur.


Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. viðskiptafræði, fjármálum, verkfræði eða tengdum greinum.
  • Reynsla af rekstri og fjármálastjórn.
  • Góð þekking á fjárhagslíkönum.
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og drifkraftur.
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni.
  • Áhugi og þekking á nýjungum á sviði AI.
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni.

Brunnur Ventures GP er ábyrgðaraðili fyrir þrjá vísisjóði, Brunn I (2015, 5 ma.kr. sjóður), Brunn II (2021, 8,3 ma.kr. sjóður) og Brunn III (2026, nýr 7,1 ma.kr. sjóður). Félagið fjárfestir fyrst og fremst í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum með skýra alþjóðlega vaxtarmöguleika. Áhersla er lögð á að styðja öfluga frumkvöðla í uppbyggingu verðmætaskapandi fyrirtækja til lengri tíma.

https://www.brunnurventures.com/

Umsóknarfrestur er til og með 8. mars nk.

Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Garðar Óli Ágústsson ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur8. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Laugavegur 7, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar