
Skatturinn
Skatturinn fer með álagningu og innheimtu skatta, gjalda og tolla auk þess að sinna eftirliti með skattskilum og viðskiptum og flutningum yfir landamæri.
Gagnaverkfræðingur
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi á sviði gagnaverkfræði (Data Engineer) á upplýsingatæknisvið í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík.
Skatturinn er framsækinn vinnustaður sem gegnir lykilhlutverki við tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði og virkri samkeppni og vernd við samfélagið. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hanna, þróa og viðhalda ETL/ELT ferlum og gagnapípum.
- Byggja og reka gagnainnviði sem styðja við uppbyggingu á vöruhúsum gagna.
- Umbreyta, hreinsa og móta gögn þannig að þau séu aðgengileg og nýtanleg fyrir greiningu og rekstur.
- Tryggja rekjanleika, gagnagæði og öryggi gagna í gegnum allan líftíma þeirra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í verkfræði, tölvunarfræði eða skyldra greina
- Viðbótarmenntun eða sérhæfing í gagnavísindum er kostur
- Reynsla af forritun (SQL eða sambærilegt)
- Þekking á Python er kostur
- Reynsla af ETL/ELT verkfærum (Airflow eða sambærilegt)
- Þekking á uppbyggingu gagnavöruhúsa
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu mál
- Góð færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur9. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Katrínartún 6
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Gagnagreinandi
Skatturinn

Deildarstjóri Eignastýringar
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Fjármála- og rekstrarstjóri
Brunnur Ventures

BUSINESS & E-COM ANALYST
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

User Acquisition Specialist
CCP Games

Publishing Intern
CCP Games

Verkefnastjóri
ÍAV

Hugbúnaðarsérfræðingur / Software Developer
Íslandsbanki

Senior Customer Solution Architect
PLAIO

Tæknilegur vörustjóri
Arion banki

Sérfræðingur / Greiningaraðili
Brunnur Ventures

Verkefnastjóri
Arctic Hydro