

Vilt þú taka þátt í að móta framtíð flugs um Keflavíkurflugvöll?
Við leitum að árangursdrifnum viðskiptastjóra með sterka greiningarhæfni í einingu flugfélaga og markaðsmála.
Starfið felur meðal annars í sér að eiga samskipti við flugfélög, greiningu viðskiptatækifæra og þróun flugleiða til og frá Keflavíkurflugvelli ásamt því að vinna að gerð farþegaspár fyrir Keflavíkurflugvöll.
Helstu verkefni:
-
Samskipti við flugfélög og úrvinnsla og eftirfylgni þarfa og óska
-
Þátttaka í leiðarkerfisþróun flugvallarins og sölusýningum
-
Söfnun, greining og miðlun tölfræðiupplýsinga
-
Þróun og gerð sölu- og markaðsáætlana fyrir flugfélög Keflavíkurflugvallar
-
Þátttaka í gerð farþegaforsenda og farþegaspá fyrir Keflavíkurflugvöll
-
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
-
Menntun á sviði viðskipta, rekstrarverkfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
-
Góð tungumála kunnátta er æskileg, enska er nauðsynleg
-
Góð þekking á tölfræði og greiningu gagna er nauðsynleg
-
Reynsla af sölustörfum, þjónustu eða viðskiptatengdum störfum er æskileg
-
Geta til að byggja upp og viðhalda traustum samskiptum við viðskiptavini
-
Þekking á starfsemi flugvalla og/eða flugfélaga er kostur
-
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni er skilyrði
-
Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Hjá KEF leggjum við ríka áherslu á virðingu og heiðarleika í samskiptum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu.
Fyrirtækið leggur sig fram við að stuðla að heilsu og vellíðan starfsfólks.
Í mötuneytum okkar er boðið upp á hollan og góðan mat og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður Flugfélaga og markaðsmála, í tölvupósti á netfangið [email protected]
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila til að sækja um óháð kyni og uppruna.
Enska
Íslenska
















