

Deildarstjóri Eignastýringar
Við hjá Isavia leitum að drífandi og framsýnum leiðtoga sem hefur gaman af því að takast á við stórar og spennandi áskoranir. Eignastýring hjá Isavia sér um eitt umfangsmesta og fjölbreyttasta eignasafn landsins og verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi. Deildarstjóri hefur það hlutverk að leiða sterkt teymi sérfræðinga, styðja þau við rekstur og þróun eignasafnsins og hefur tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á rekstur og þróun eigna á Keflavíkurflugvelli. Byggingar á ábyrgðarsviði deildarinnar telja tæplega 190.000 fermetra og aðrar eignir eru m.a. flughlöð og flugbrautir, farangurskerfi og veitukerfi. Viðkomandi hefur einnig það mikilvæga hlutverk að mynda sterkt teymi, skapa jákvæðan starfsanda og stuðla að uppbyggjandi menningu innan deildarinnar.
Helstu verkefni:
- Ber ábyrgð á daglegum rekstri deildarinnar
- Styður eignastjóra og starfsfólk einingarinnar við að ná markmiðum og tryggja skilvirkan rekstur eigna félagsins
- Ber ábyrgð á að setja fram mælikvarða og markmið fyrir deildina
- Ber ábyrgð á gerð og eftirfylgni rekstraráætlana og hefur yfirsýn yfir kostnað og fjárfestingaþörf eigna
- Ber ábyrgð á líftímakostnaðargreiningum og styður starfsfólk við gerð viðhaldáætlana
- Ber ábyrgð á gerð ferla og leiðbeininga fyrir eignir deildarinnar
- Leiðir vinnu starfsfólks við gerð staðla vegna framkvæmda
- Hefur yfirsýn yfir tiltækileika eigna og rýma og leiðir samstarf við aðrar deildir vegna viðtöku og reksturs eigna
- Ber ábyrgð á rekstur eigna sé í samræmi við lög, reglur og stefnur
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verkfræði og/eða stjórnunar
- Leiðtogafærni og framúrskarandi samskiptafærni
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Mjög góð hæfni til að leiðbeina og hvetja starfsfólk
- Góð íslensku- og enskukunnátta, í ræðu og riti
Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli en Isavia býður starfsfólki sínu upp á rútuakstur milli höfuðborgarsvæðis og flugvallar.
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknarfrestur er til og með 15.mars 2026.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristín Erla Einarsdóttir, í gegnum netfangið [email protected].
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur hvernig reynsla og hæfni nýtist í starfi ásamt því hvað í starfinu vekur áhuga og eldmóð.
Við hvetjum áhugasama aðila til að sækja um.
Enska
Íslenska














