
HS Orka
HS Orka er framsækið og ört vaxandi orkufyrirtæki sem byggir á sjálfbærri nýtingu auðlinda. Nýsköpun hefur ávallt verið hluti af kjarnastarfsemi HS Orku og er uppbygging Auðlindagarðsins þar í fyrirrúmi. Áhersla er lögð á að skapa tækifæri með fullnýtingu auðlindastrauma í takti við náttúruna og í sátt við samfélagið.
Við erum í fararbroddi í orkuskiptum hér á landi og höfum sett okkur skýr og ábyrg markmið í loftslagsmálum. Spennandi þróunarverkefni eru í undirbúningi á vegum fyrirtækisins, jafnt í jarðvarma sem vatnsafli, auk þess sem kostir vindorku eru til skoðunar til lengri tíma.
Við erum þriðji stærsti orkuframleiðandi landsins og framleiðum raforku í Svartsengi, Reykjanesvirkjun, Brúarvirkjun og Fjarðarárvirkjunum. Einnig seljum við heitt og kalt vatn til heimila og fyrirtækja á Suðurnesjum, auk annarra auðlindastrauma í Auðlindagarðinum. Við miðlum líka raforku frá fjölda sjálfstæðra orkuframleiðenda vítt og breytt um landið.
Við erum ótrúlega skemmtilegur hópur starfsfólks sem störfum í sveigjanlegu og fjölskylduvænu vinnuumhverfi þar sem heilbrigði, hollusta og vellíðan eru í öndvegi. Kaffið okkar er líka frábært! Mikil áhersla er lögð á lipurð í samskiptum, liðsheild og framsækni. Þannig náum við best markmiðum okkar um ábyrga auðlindanýtingu í sátt við samfélagið.
Við erum stærsta orkufyrirtæki landsins í einkaeigu. Eignarhaldið skiptist að jöfnu milli Jarðvarma, sem er samlagshlutafélag í eigu fjórtán íslenskra lífeyrissjóða, og sjóða í stýringu Ancala, sjóðastýringafélags með höfuðstöðvar í Bretlandi.

Sérfræðingur í fjármálum
Við erum að leita að sérfræðingi til að ganga til liðs við öflugt teymi á fjármálasviði. Um er að ræða nýtt starf í fjölbreyttu og líflegu starfsumhverfi.
Skrifstofur HS Orku eru í Turninum á Smáratorgi og í Svartsengi.
Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 2026.
Nánari upplýsingar veitir Petra Lind Einarsdóttir, mannauðsstjóri, [email protected].
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gerð fjárhagslíkana og fjárhagslegar greiningar.
- Vinna við verðmatslíkön og verðmat eigna samkvæmt viðurkenndum aðferðum.
- Þáttaka í fjár- og áhættustýringu.
- Þátttaka í skýrslugerð, undirbúningi kynningarefnis og miðlun fjárhagsupplýsinga til stjórnar og ytri aðila.
- Þátttaka í áætlanagerð og gerð fjárhagsuppgjöra.
- Þróun á ferlum fjármáladeildar.
- Aðstoð við aðrar deildir á sviði fjármála og uppgjöra.
- Ýmis önnur verkefni á fjármálasviði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði viðskipta, hagfræði, verkfræði, eða sambærileg menntun ákjósanleg.
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar.
- Nákvæmni, sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
- Hæfni til að tileinka sér nýjungar.
- Góð tölvufærni er skilyrði, farið er fram á framúrskarandi þekkingu í Excel, þekking á SQL og forritun er kostur.
- Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði.
Auglýsing birt20. febrúar 2026
Umsóknarfrestur5. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Svartsengi
Turninn
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurMicrosoft ExcelNákvæmniSjálfstæð vinnubrögðSQLVinna undir álagi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sumarstarf á eignadeild umhverfissviðs
Sumarstörf - Kópavogsbær

Sérfræðingur í þjónustu og upplifun
APRÓ

Verkfræðingur á sviði brúarhönnunar
Vegagerðin

Tæknilegur verkefnastjóri
Farice ehf

UPPLÝSINGATÆKNISTJÓRI
SÁÁ

Vélaverk- eða tæknifræðingur
First Water

Director Line Maintenance
Air Atlanta Icelandic

Gjaldkeri
Eignaumsjón hf

Sérfræðingur í fjár- og áhættustýringu
Icelandair

Verkefnastjóri/-stýra framkvæmda
Landsnet hf.

Verkefnastjóri
Steypustöðin

Design Manager
atNorth ehf.