
Arion banki
Starfsfólk Arion banka er kjarninn í starfsemi bankans og kappkostar bankinn að búa vel að starfsfólki sínu.
Arion banki er lifandi vinnustaður þar sem starfsumhverfið einkennist af fagmennsku, framsækni, umhyggju og tryggð
Hjá Arion banka starfa um 900 manns, þar af eru 65% konur og 35% karlar. Kynjaskipting á meðal stjórnenda bankans er fremur jöfn og sama gildir um aldursdreifingu innan bankans en meðalaldur starfsfólks Arion banka er 42 ár.
Fjölmargt starfsfólk hefur sýnt bankanum og forverum hans mikla tryggð og eru dæmi um að starfsfólk sé með meira en 40 ára starfsaldur. Meðal starfsaldur hjá Arion banka er tíu ár.

Tæknilegur vörustjóri
Vegna umfangsmikilla verkefna leitum við að tæknilegum vörustjórum. Tæknilegir vörustjórar eru þátttakendur í þverfaglegum vöruþróunarteymum Arion og spila þeir stórt hlutverk í samspili vöru, ferla og tækni. Í því felst m.a. utanumhald á notendasögum tækniþróunar, aðkoma að rekstri, greiningar á kröfum stærri verkefna og samskipti við birgja. Tæknilegur vörustjóri vinnur náið með vörustjórum, tækniteymum og öðrum hagaðilum sem koma að vöruþróun og rekstri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í mótun og skipulagningu stærri verkefna
- Tæknileg forgangsröðun lítilla og meðalstórra verkefna
- Ræða og miðla tæknilegri sýn lausna í þverfaglegu samstarfi innan Arion
- Skipulagning á þeirri hugbúnaðarþróun sem er í forgangi hverju sinni
- Gerð kostnaðaráætlana og eftirfylgni í tengslum við aðkeypta þjónustu
- Samskipti við birgja
- Faglegt starf í hópi tæknilegra vörustjóra
- Tæknileg skjölun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi s.s. tölvunarfræði, viðskiptafræði, verkfræði eða sambærilegt
- Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, drifkraftur og skipulagshæfni
- Áhugi á að fylgjast með nýjungum og þróun í smíði hugbúnaðar
- Góð þekking og reynsla af þróun hugbúnaðar í teymi
- Gott vald á rituðu máli, bæði íslensku og ensku
- 1-3 ára reynsla af störfum í greiningu eða sem vörustjóri er kostur
Auglýsing birt18. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)

SÉRFRÆÐINGUR Á FJÁRMÁLASVIÐI
Samherji hf.

BÓKARI Á FJÁRMÁLASVIÐI
Samherji hf.

Sérfræðingar í þróunarteymi
Reykjavik Geothermal

Sérfræðingur
MAR Advisors

Solution Architect – Mobile Applications | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Sérfræðingur í innivist
EFLA hf

Verkefnastjóri í viðhaldsráðgjöf
EFLA hf

Business Central Specialist | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Sumarstörf á Vestursvæði: þjónustudeild og tæknideild
Vegagerðin

Project Manager
Tern Systems

Sérfræðingur í hönnun stjórnkerfa
Raftákn

Viðskiptastjóri
Terra Einingar