
Míla hf
Míla er virkur þátttakandi í uppbyggingu framtíðarinnar. Á næstunni munum við sjá nýja og spennandi lausnir vaxa og dafna á Alnetinu. Gervigreind, sýndarheimar, heildrænar fundarlausnir, fjarkennsla og heilsa eru allt svið sem koma til að eflast samhliða öflugum tengingum. Við þurfum á brautryðjendum framtíðar að halda til að styrkja stoðir fjarskipta Íslands.

Vilt þú vinna að spennandi verkefnum í fjarskiptum?
Sumarstarf á Tæknisviði Mílu
Hefur þú áhuga á fjarskiptum? Við bjóðum upp á tækifæri til að kynnast nýjustu tækni á sviði fjarskipta og taka þátt í að greina, prófa og innleiða nýjar tæknilausnir í prófunarumhverfi (lab) Tæknisviðs. Verkefnin opna nýja heima í fjarskiptum og veita innsýn í uppbyggingu mikilvægra grunnstoða sem tengja heimili og vinnustaði við Alnetið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Setja upp og sannreyna búnað og hugbúnað í prófunarumhverfi (lab) Tæknisviðs
- Vinna að spennandi verkefnum innan Aðgangskerfa Mílu í nánu samstarfi við sérfræðinga
- Taka þátt í þróun og prófun lausna fyrir nettengingar heimila og vinnustaða
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hafa lokið öðru ári í rafmagns- og tölvuverkfræði eða sambærilegu námi
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Áhugi á fjarskiptum og netkerfum er kostur
- Þekking eða reynsla af forritun er kostur
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi og leiða framfarir
Fríðindi í starfi
- 🔋 Miðlægar starfsstöðvar í Reykjavík með hleðslustæði
- 🚿 Hjólageymsla með rafmagni og aðgangur að sturtum
- 🥗 Mötuneyti á staðnum með salatbar og grænkerakostum
- 💪 Metnaðarfullt starfsumhverfi
- 🥳 Öflugt félagslíf á vegum starfsmannafélags og leikherbergi með billiard-borði
Auglýsing birt19. febrúar 2026
Umsóknarfrestur5. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Stórhöfði 22-30, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
MetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í fjármálum
HS Orka

Sérfræðingur í stjórnbúnaði
HS Orka

Verkefnastjóri
ÍAV

Sumarstörf á þróunar- og þjónustusviði
Vegagerðin

Verkfræðingur í Gæðasetri
Embla Medical | Össur

Hefur þú áhuga á tæknilausnum í fjarskiptum?
Míla hf

Verkefnastjóri / Vélahönnuður
Héðinn

SÉRFRÆÐINGUR Á FJÁRMÁLASVIÐI
Samherji hf.

Sérfræðingar í þróunarteymi
Reykjavik Geothermal

Tæknilegur vörustjóri
Arion banki

Solution Architect – Mobile Applications | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Sérfræðingur í innivist
EFLA hf