
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 350 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Sumarstörf á þróunar- og þjónustusviði
Vegagerðin leitar eftir einstaklingum til að takast á við fjölbreytt og spennandi verkefni í sumar á þróunar- og þjónustusviði. Um dagvinnustörf er að ræða og starfstöðin er á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða 3 störf á þróunarsviði og 1 starf á þjónustusviði.
Vinsamlegast takið fram í umsókn undir athugasemdum hvort sótt er um á þróunar- eða þjónustusviði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þróunarsvið
- Skráning og vinnsla landupplýsinga.
- Söfnun gagna sem tengjast heildstæðu mati á öryggi vegakerfisins.
- Söfnun upplýsinga um þungaumferð.
- Framsetning á umferðarupplýsingum.
- Gagnasöfnun og greining á raski á gróðurlendi og votlendi.
- Verkefni á sviði orkuskipta í samgöngum.
Þjónustusvið
- Aðstoða við gerð á nýju fræðsluefni fyrir Vegagerðarskólann.
- Skrifa skýrar og hnitmiðaðar textalýsingar við fræðsluefni.
- Aðstoða við að útbúa leiðbeiningar.
- Útbúa stuttar og skýrar námslýsingar fyrir fræðsluefni.
- Skipuleggja, útbúa handrit og taka viðtöl við starfsfólk um verklag, reynslu og þekkingu.
- Upptaka á stuttum fræðslumyndböndum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntunarkröfur
Þróunarsvið
- Háskólanemi eða önnur menntun sem nýtist í starfi, s.s. landfræði, jarðfræði, tæknifræði, skipulagsfræði, verkfræði.
Þjónustusvið
- Háskólanemi eða önnur menntun sem nýtist í starfi s.s. mannauðsstjórnun eða kennslufræði.
Aðrar hæfnikröfur
- Góð öryggisvitund.
- Reynsla sem nýtist í starfi kostur.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og hæfni til að vinna í hóp.
- Góð kunnátta í íslensku og ensku.
- Kunnátta í framsetningu og úrvinnslu gagna.
- Kunnátta í vinnslu með landupplýsingakerfi.
Auglýsing birt16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Verkfræðingur á sviði brúarhönnunar
Vegagerðin

Skipulagsfulltrúi
Sveitarfélagið Hornafjörður

Tæknilegur verkefnastjóri
Farice ehf

Verkefnastjóri stærri uppbyggingarverkefna
Umhverfis- og skipulagssvið

Teymisstjóri skipulagsmála
Umhverfis- og skipulagssvið

UPPLÝSINGATÆKNISTJÓRI
SÁÁ

Sumarstarfsmaður hjá Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins

Verkstjóri byggingaframkvæmda
Verkgarðar

Vélaverk- eða tæknifræðingur
First Water

Director Line Maintenance
Air Atlanta Icelandic

Verkefnastjóri/-stýra framkvæmda
Landsnet hf.

Verkefnastjóri
Steypustöðin