66°North
66°North
66°North

Sérfræðingur í vörustýringu (e. Allocation Specialist)

66°North leitar að metnaðarfullum og framsæknum sérfræðingi í öflugt teymi vörustýringar. Við leitum að aðila með brennandi áhuga á gögnum og skilvirkni, sem jafnframt hefur ríkan áhuga á hönnun og tísku og nýtur þess að starfa í hröðu og fjölbreyttu umhverfi.

Ef þú hefur sterka, lausnamiðaða hugsun og sýnir frumkvæði í að bæta ferla og takast á við krefjandi verkefni með gagnadrifinni nálgun, þá gætir þú verið rétti aðilinn.

Tilgangur starfsins er að tryggja hagkvæmt vöruflæði og markvissa birgðastýringu fyrir vöruhús og verslanir 66°North. Hlutverkið krefst náins samstarfs og reglulegra samskipta við verslanir, ásamt gagnagreiningu og stöðugri þróun að endurbótum á ferlum sem styðja við skilvirkni, framúrskarandi þjónustu og sölu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dreifing og eftirfylgni birgða í vöruhús og verslanir 

  • Greining gagna til að styðja við ákvarðanatöku og fyrir áætlanagerð 

  • Innleiðing sjálfvirkra ferla og hagræðingalausna sem auka skilvirkni og nákvæmni 

  • Regluleg skýrslugerð og uppfærsla á lykilmælikvörðum 

  • Náið samstarf við vörustýringu, framleiðslu, verslanir og önnur lykilteymi 

  • Virk þátttaka í þróun verklags og innleiðingu nýrra lausna 

  • Sterk tenging við verslanateymi til að fylgjast með framsetningu, vöruflæði og þörfum verslana 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í verkfræði, tölfræði, upplýsingatækni eða sambærilegu sviði 

  • Mjög góð færni í Excel; reynsla af VBA, SQL, Power Query, Power BI eða sambærilegum verkfærum 

  • Frumkvæði og lausnarmiðuð nálgun til að bæta ferla og leysa vandamál 

  • Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð 

  • Góð samskiptahæfni 

  • Áhugi á tísku og hönnun 

Auglýsing birt16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur6. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Miðhraun 11, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.SQL
Starfsgreinar
Starfsmerkingar