66°North
66°North
66°North

Sölufulltrúi 66° Norður Akureyri

66°Norður leitar að dugmiklum einstaklingum í verslanir 66°Norður á Akureyri. Um er að ræða 75% starf og hlutastarf. Viðtöl verða tekin jafnt og þétt yfir umsóknarfrestinn og því hvetjum við áhugasama til að sækja um sem fyrst.

Sjóklæðagerðin hf. er eitt elsta framleiðslufyrirtæki Íslands.

Árið 1926 hóf fyrirtækið framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum en seinna bættist við vörulínu fyrirtækisins vinnufatnaður fyrir fólk í landi.

Rætur fyrirtækisins liggja því í framleiðslu sjó- og vinnufatnaðar og er fyrirtækið afar stolt af þeirri arfleifð sinni. Í dag er hönnun og framleiðsla útivistarfatnaðar kjarninn í starfsemi fyrirtækisins sem framleiddur er undir vörumerkinu 66°Norður en fyrirtækið leggur mikið upp úr gæðum vörunnar þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu efnin í framleiðsluna.

Sjóklæðagerðin er með starfsemi í fjórum löndum: á Íslandi, í Danmörku, Bretlandi og Lettlandi. Höfuðstöðvarnar eru tvær, á Íslandi og í Kaupmannahöfn. Á Íslandi rekur fyrirtækið 11 verslanir undir merkjum 66°North, þar af þrjár á Akureyri: í Hafnarstræti, Skipagötu og Vitanum á Oddeyrarbryggju. Í Kaupmannahöfn eru þrjár verslanir, en þar opnaði fyrsta verslun 66°Norður utan Íslands árið 2014. Í London er verslun á Regent Street, sem opnaði árið 2022. Framleiðslan fer fram í tveimur eigin verksmiðjum fyrirtækisins í Lettlandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjónusta viðskiptavini
  • Áfylling og framsetning vara
  • Önnur tilfallandi verslunarstörf
Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Jákvætt viðmót og þjónustulund
  • Framúrskarandi hæfileikar í mannlegum samskiptum
  • Brennandi áhugi á útivist og hreyfingu
  • Áhugi á sölumennsku
  • Mjög góð enskukunnátta
  • Kunnátta í Norðurlandamáli, þýsku, kínversku eða öðrum tungumálum er kostur
  • Reynsla af sölustörfum kostur
Auglýsing birt23. nóvember 2026
Umsóknarfrestur13. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Strandgata, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar