Húsasmiðjan
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan

Vestmannaeyjar: Deildarstjóri í timbursölu

Hefur þú góða þekkingu á timbri og byggingarefnum og langar að nýta hana í ráðgjöf og sölu?

Hjá Húsasmiðjunni færðu tækifæri til að vinna með fagfólki, veita ráðgjöf og hjálpa bæði einstaklingum og fagfólki að velja réttu efnin og lausnirnar fyrir verkefnin sín.

Við leitum að öflugum liðsmanni til að leiða timbursölu Húsasmiðjunnar í Vestmannaeyjum. Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem hefur reynslu úr byggingariðnaði eða af sölu byggingarefna og vill nýta fagþekkingu sína í fjölbreyttu starfi.Iðnmenntun eða reynsla af timbri og byggingarefnum er mikill kostur. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að miðla þekkingu sinni, sýnir frumkvæði og hefur metnað fyrir góðri þjónustu og rekstri deildarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg ráðgjöf um timbur, byggingarefni og tengdar vörur.
  • Sala og þjónusta við einstaklinga og fagfólk.
  • Uppbygging og viðhald viðskiptasambanda við iðnaðarmenn og fyrirtæki.
  • Dagleg umsjón með timbursölu og eftirfylgni með verkefnum deildarinnar.
  • Pantanir og birgðastýring.
  • Umsjón með framsetningu vara, skipulagi og snyrtimennsku á sölusvæði.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð þekking á timbri, byggingarefnum og notkun þeirra.
  • Iðnmenntun eða reynsla úr byggingariðnaði eða af sölu byggingarefna er mikill kostur.
  • Metnaður fyrir því að veita faglega ráðgjöf og framúrskarandi þjónustu.
  • Góð samskiptafærni og hæfni til að byggja upp traust við viðskiptavini og samstarfsfólk.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Frumkvæði, ábyrgð og áhugi á að ná árangri í starfi.
  • Áhugi á sölu og þjónustu.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Fríðindi í starfi
  • Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla
  • Aðgangur að orlofshúsum
  • Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fræðslustyrkur
  • Afsláttarkjör í verslunum okkar
Auglýsing birt17. nóvember 2026
Umsóknarfrestur28. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Græðisbraut 1, 900 Vestmannaeyjar
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar