
Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar
Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar samanstanda af íþróttahúsum í hverjum kjarna, sundlaugum, Fjarðabyggðarhöllinni og skíðasvæðinu í Oddsskarði. Í Fjarðabyggð eru fimm íþróttamiðstöðvar ásamt Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Íþróttamiðstöðvarnar eru nýttar sem skólamannvirki, til æfinga og fyrir almenning. Í sveitarfélaginu eru einnig glæsilegar útisundlaugar á Norðfirði og Eskifirði, með heitum pottum, sundrennibrautum og frábærri aðstöðu. Á Fáskrúðsfirði er notaleg innilaug með heitum útipotti. Á Stöðvarfirði og í Breiðdal eru litlar útilaugar ásamt heitum pottum í fallegu umhverfi. Skíðasvæðið Oddsskarð er eitt skemmtilegasta skíðasvæði landsins. Á skíðasvæðinu eru tvær toglyftur og barnalyfta, góð aðstaða fyrir brettafólk og skíðaskáli með veitingaaðstöðu.

Starfsmaður við Skíðamiðstöð Austurlands Oddsskarði
Fjarðabyggð auglýsir eftir öflugum einstakling til starfa við Skíðamiðstöð Austurlands Oddsskarði. Starfið hentar vel einstaklingum sem hafa gaman af útiveru, njóta þess að vinna með fólki og vilja taka þátt í að skapa örugga og skemmtilega upplifun fyrir gesti skíðasvæðisins.
Vinnutími er að mestu síðdegis á virkum dögum og um helgar á opnunartíma skíðasvæðisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni:
· Lyftuvarsla:
- Starfsmanni ber að sinna lyftuvörslu skv. öryggisstöðlum skíðasvæðisins.
- Fylgjast með miðanotkun viðskiptavina.
- Aðstoða byrjendur í lyftu.
- Veita upplýsingar um skíðaleiðir.
- Önnur tilfallandi þjónusta við skíðaiðkendur og gesti.
- Viðhald og undirbúningur skíðasvæðis
- Almennt viðhald á lyftum og búnaði.
- Undirbúningur skíðasvæðis svo sem merking skíðaleiða ofl.
· Skálavarsla:
- Gera klárt fyrir opunun innandyra
- Almenn afgreiðslustörf.
- Innkaup fyrir skíðamiðstöð í samráði við forstöðumann.
- Þrif á skíðaskála.
- Sinna skíðaleigu.
- Viðhald og undirbúningur skíðaleigu
- Almennt viðhald á skíðum, brettum og búnaði.
- Taka til búnað fyrir leigutaka.
Teymisvinna
- Náið samstarf með starfsfólki Skíðamiðstöðvar Austurlands Oddsskarði og forstöðumanni.
Samskipti
- Við samstarfsmenn í skíðamiðstöðinni.
- Við gesti og notendur skíðamiðstöðvarinnar.
Önnur verkefni
- Önnur verkefni sem forstöðumaður skíðamiðstöðva Austurlands Oddsskarði eða staðgengill felur honum og skilgreind eru á ábyrgðarsviði hans.
Fjármál
- Uppgjör þá daga sem forstöðumaður getur ekki séð um það.
- Innkaup á rekstrarvörum og matvælum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun og reynsla
- Reynsla af störfum á skíðasvæði kostur
- Reynsla af þjónustustörfum.
- Tungumálakunnátta til að geta þjónusta erlenda gesti.
- Námskeið í skyndihjálp kostur
Hæfnisþættir
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Frumkvæði og skipulagshæfni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund.
Fríðindi í starfi
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um stöðuna.
Auglýsing birt17. nóvember 2026
Umsóknarfrestur1. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Eskifjörður , 735 Eskifjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Vestmannaeyjar: Deildarstjóri í timbursölu
Húsasmiðjan

Vaktstjóri í verslun
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Móttökufulltrúi vöruhúss / Warehouse Receiving Agent
NEWREST ICELAND ehf.

Starf hjá þjónustuveri
Landspítali

Local Hlutastarf / Part time
LOKAL

Lyfja Reykjanesbæ - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Starfsmaður Hobby & Sport í Kópavogi
Hobby & Sport ehf

Sölufulltrúar óskast í Icewear
ICEWEAR

Icewear Goðafossi - Sölufulltrúar
ICEWEAR

Starfsmaður í verslun - Byko Grandi
Byko

Pizzan óskar eftir starfsfólki
Pizzan

Vaktstjóri - Maika'i Kringlan
MAIKA'I