MAIKA'I
MAIKA'I
MAIKA'I

Vaktstjóri - Maika'i Kringlan

Vaktstjóri óskast á Maika’i í Kringlunni 💗

Maika’i leitar að jákvæðum, ábyrgum og drífandi einstaklingi í starf vaktstjóra á staðnum okkar í Smáralind.

Við leitum að einstaklingi sem hefur gaman af því að vinna með fólki, veita framúrskarandi þjónustu og taka virkan þátt í daglegum rekstri staðarins.

Um er að ræða dagvinnustarf þar sem unnið er náið með verslunarstjóra og tekið þátt í að tryggja að allt gangi vel fyrir sig.

Vinnutími

  • Mánudaga til föstudaga kl. 09:00–15:00.

  • Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsókn

Ef þú ert jákvæður, metnaðarfullur og tilbúinn að taka þátt í skemmtilegu og líflegu starfsumhverfi viljum við endilega heyra frá þér!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg umsjón með staðnum í samstarfi við verslunarstjóra.

  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini.

  • Þrif og almenn umhirða staðarins.

  • Að tryggja að staðurinn sé snyrtilegur, vel skipulagður og tilbúinn fyrir daginn.

  • Önnur verkefni sem tengjast daglegum rekstri.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi þjónustulund.

  • Ábyrgðarkennd, sjálfstæði og frumkvæði.

  • Skipulagshæfni og góð samskiptafærni.

  • Geta til að vinna vel undir álagi.

  • Reynsla af þjónustustörfum er kostur.

Fríðindi í starfi
  • Þægilegur og fjölskylduvænn vinnutími, mánudaga til föstudaga kl. 09:00–15:00.

  • Skemmtilegt og líflegt starfsumhverfi.

  • Góður starfsandi og frábærir samstarfsfélagar.

  • Tækifæri til að taka ábyrgð og þróast í starfi.

  • Starfsþjálfun og stuðningur frá verslunarstjóra.

  • Tækifæri til að vera hluti af ört vaxandi fyrirtæki.

Auglýsing birt12. nóvember 2026
Umsóknarfrestur1. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Kringlan 1, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar