

Starfsmaður á afgreiðslukassa BYKO Breidd - Fullt starf
Við hjá BYKO erum að leita að öflugu starfsfólki til liðs við okkur í fullt starf á afgreiðslukassa í verslun BYKO í Breiddinni. Ef þú ert framsækinn og faglegur starfsmaður með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Unnið er alla virka daga og vinnutími skiptist milli vikna 7:45-16:00 / 8:45-17:00
Við leitum að starfsmanni með:
- Reynslu af sölu- og eða þjónustustarfi
- Ríka þjónustulund
- Stundvísi
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Íslenskukunnátta, skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Afgreiðsla og þjónusta á þjónustuborði, afgreiðslukassa og sjálfsafgreiðslu
- Áfyllingar
- Önnur tilfallandi verkefni
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.
Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Katrín Ósk Guðmannsdóttir, ([email protected]) skrifstofustjóri.
Íslenska










