Fiskmarkaðurinn
Fiskmarkaðurinn
Fiskmarkaðurinn

Matreiðslumaður / Matreiðslunemi / Sushi-kokkur – Fiskmarkaðurinn

Á Fiskmarkaðnum snýst allt um framúrskarandi hráefni, sköpunargleði, metnað og einstaka matarupplifun.

Við erum að leita að hæfileikaríku og drífandi fólki til að styrkja eldhústeymið okkar!

Hvort sem þú ert reyndur matreiðslumaður, matreiðslunemi sem vill læra af þeim bestu eða sushi-kokkur með ástríðu fyrir faginu, þá gæti þetta verið tækifærið fyrir þig.

Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna með spennandi hráefni, þróa hæfileika þína og taka þátt í kraftmiklu eldhússtarfi þar sem gæði, nákvæmni og sköpunargleði eru í fyrirrúmi.

Hvern erum við að leita að?

  • Þér sem hefur brennandi áhuga á matargerð og góðum mat.

  • Þér sem leggur metnað í hvert smáatriði.

  • Þér sem nýtur þess að vinna í góðu teymi og líflegu umhverfi.

  • Þér sem ert jákvæður, áreiðanlegur og tilbúinn að takast á við nýjar áskoranir.

  • Þér sem vilt læra, þróast og verða enn betri í þínu fagi.

Reynsla er kostur en rétta viðhorfið, metnaðurinn og áhuginn skipta okkur mestu máli.

Hvað bíður þín á Fiskmarkaðnum?

  • Spennandi og fjölbreytt starf í metnaðarfullu eldhúsi.

  • Frábærir samstarfsfélagar og öflug liðsheild.

  • Tækifæri til að læra nýja hluti og þróast í starfi.

  • Skapandi matargerð og vinna með fyrsta flokks hráefni.

  • Líflegt starfsumhverfi þar sem engir tveir dagar eru eins.

Tilbúin/n í næsta skref?

Við leitum að fólki sem hefur gaman af því sem það gerir, vill ná árangri og er tilbúið að leggja sitt af mörkum til að skapa einstaka upplifun fyrir gestina okkar.

Komdu og vertu hluti af Fiskmarkaðsteyminu!

Sendu okkur umsókn í gegnum Alfreð.

Við hlökkum til að kynnast þér!

Auglýsing birt11. nóvember 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Aðalstræti 12, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar