

Matráður í Flóahreppi með starfsstöð í Flóaskóla
Flóaskóli er staðsettur í Villingaholti í Flóahreppi, í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá Selfossi. Í skólanum eru um 110 nemendur í 1.-10. bekk og um 30 starfsmenn. Við skólann starfar öflugur og metnaðarfullur hópur fólks sem vinnur samhent að því að skapa jákvætt og uppbyggjandi vinnuumhverfi, hlúa vel að nemendum og stuðla að því að þeir nái að vaxa og dafna í námi og starfi. Unnið er markvisst með samskipti og líðan nemenda.
Óskað er eftir matráð í 100% starf sem annast matargerð í nemendamötuneyti Flóaskóla, innkaup og önnur verkefni sem tengjast mötuneytinu.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Þórunn Jónasdóttir skólastjóri í síma 7718342 eða í tölvupósti á [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 13. nóvember 2026, ráðið verður í starfið eins fljótt og unnt er.
Útbýr matseðla fyrir hvern mánuð og sendir til ritara skólans og skrifstofu sveitarfélagsins
Ber ábyrgð á að farið sé eftir manneldismarkmiðum við alla matseld
Sér um innkaup og leitast við að þau séu sem hagkvæmust
Hefur umsjón með tækjabúnaði í mötuneytiseldhúsi skólans
Hefur umsjón með borðbúnaði og öðrum lausamunum í mötuneyti
Hefur umsjón með þrifum á mötuneytiseldhúsi
Annast önnur störf sem honum eru falin af yfirmanni og falla innan eðlilegs verksviðs hans
Matreiðslumenntun og/eða menntun sem nýtist í starfi
Hæfni í samvinnu og mannlegum samskiptum
Frumkvæði í starfi og lausnamiðuð hugsun
Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
Hreinlæti og snyrtimennska
Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
Stundvísi og samviskusemi.
Íslenska






