
Advania
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar við að einfalda störf viðskiptavina okkar með snjallri nýtingu á upplýsingatækni. Þó við séum sérfræðingar í tækni viljum við veita framúrskarandi þjónustu. Við hlúum að fólkinu okkar og hjálpumst að við að skapa lifandi vinnustað.
Advania á Íslandi er hluti af Advania-samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með yfir 50 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa yfir 5000 sérfræðingar í upplýsingatækni.

Vörustjóri rekstrarlausna
Rekstrarlausnir Advania leita að drífandi aðila til þess að styrkja vörustýringarteymi sitt. Um er að ræða lykilhlutverk í mótun og þróun lausna sem falla undir hýsingu og rekstur tölvukerfa, netöryggi og fjölbreytta UT þjónustuveitingu (MSP).
Markmið vörustýringar er að byggja upp skýrt og samkeppnishæft þjónustuframboð sem skapar raunverulegt virði fyrir viðskiptavini og styður við sjálfbæran rekstur. Þetta er einstakt tækifæri fyrir aðila sem vill hafa áhrif á þróun upplýsingatækniþjónustu á Íslandi.
Hlutverk þitt:
- Bera ábyrgð á hluta lausnaframboðs rekstrarlausna Advania.
- Móta og framfylgja vörustefnu sem tekur mið af þörfum viðskiptavina og markaðstækifærum.
- Vinna þvert á sölu, þjónustu, tækni og markað til að tryggja skýrt virði og samræmt lausnaframboð.
- Vera talsmaður viðskiptavina og markaðar í áframhaldandi þróun lausna.
- Skilgreina og þróa þjónustulýsingar, verðlagningu og framsetningu MSP lausna.
- Kynna vöruframboð með skýrum og aðgengilegum hætti fyrir viðskiptavini og samstarfsfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegar greinar.
- Góð þekking af þjónustuveitingu og framboði í UT umhverfi, sérstaklega rekstrar- eða þjónustulausnum (MSP).
- Reynsla af vörustýringu, þjónustuhönnun eða þróun lausna er mikill kostur.
- Sterk viðskiptahugsun og hæfni til að tengja saman þarfir markaðar og tæknilegar lausnir.
- Framúrskarandi samskipta- og framsetningarhæfni.
Auglýsing birt16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur6. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í vörustýringu (e. Allocation Specialist)
66°North

Sumarstörf á þróunar- og þjónustusviði
Vegagerðin

Strategy & Transformation Manager
Icelandair

Verkfræðingur
Verkfræðistofa Bjarna Viðarssonar ehf. (VBV)

Greinandi á sviði sjálfbærnimála
Reitun ehf

Verkfræðingur í Gæðasetri
Embla Medical | Össur

Verkefnastjóri / Vélahönnuður
Héðinn

Forstöðumaður hönnunardeildar
Vegagerðin

Delivery Lead á upplýsingatæknisviði
Arion banki

Innkaupastjóri
K16

Sérfræðingur í umhverfismálum hafsins
Umhverfis- og orkustofnun

Full Stack Developer
Svarmi