Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Umsjón eigna og búnaðar – Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Við hjá Isavia leitum að öflugum og framsæknum starfsmanni í umsjón eigna og búnaðar á Keflavíkurflugvelli.

Starfsmaður við umsjón eigna og búnaðar sinnir reglulegu eftirliti með fasteignum og búnaði, fyrstu viðbrögðum við bilunum og tryggir að kerfi og flæði á flugvellinum virki sem skyldi. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf í krefjandi og spennandi umhverfi þar sem engir tveir dagar eru eins.

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia.

Helstu verkefni:

  • Eftirlit og viðbrögð við truflunum á flæði farangurs í farangurskerfi
  • Fyrstu viðbrögð vegna bilana og/eða rekstrarfrávika
  • Reglubundið eftirlit með fasteignum og eignum MOI samkvæmt áætlun
  • Minniháttar viðhald og viðgerðir
  • Skráning í viðeigandi viðhaldskerfi vegna ábendinga eða verka
  • Náinn samvinna og samskipti við aðrar deildir innan Isavia

Hæfniskröfur:

  • Iðnmenntun eða önnur menntun/reynsla sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi samskiptafærni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Metnaður og vandvirkni í starfi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Frumkvæði, þjónustulund og skipulögð vinnubrögð

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Skúli Pálsson, [email protected].

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Auglýsing birt20. febrúar 2026
Umsóknarfrestur3. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HandlagniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar