Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Viðhald og eftirlit með tækjum og búnaði - vélaverkstæði Reyðarfirði

Við leitum að starfsmanni á vélaverkstæði Vegagerðarinnar á Reyðarfirði. Vegagerðin á Austursvæði nær frá Gígjukvísl á Skeiðarársandi að Sandvíkurheiði í Vopnafirði og rekur þjónustustöðvar í Fellabæ, á Reyðarfirði og á Höfn í Hornafirði, ásamt vélaverkstæði á svæðismiðstöð á Reyðarfirði. Starfsmaður þarf að geta sinnt viðhaldi tækja og búnaðar á öllu svæðinu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta við vélar, tæki og búnað á þjónustustöðvum á Austursvæði.
  • Viðhald og eftirlit með bílum, búnaði og tækjum Vegagerðarinnar.
  • Uppsetning og viðhald á vegbúnaði og mælitækjum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf sem nýtist í starfi, æskilegt.
  • Vinnuvélaréttindi, æskileg.
  • Starfsreynsla sem nýtist í starfi.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og hæfni að vinna í teymi.
  • Gott vald á íslensku og ensku.
  • Góð öryggisvitund.
  • Góð tölvufærni.
Auglýsing birt20. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Búðareyri 11, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar