
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan er meðal stærstu verslunarfyrirtækja landsins og hluti af Bygma Gruppen A/S. Bygma rekur fjölmargar byggingavöruverslanir í Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og á Grænlandi. Ásamt því rekur fyrirtækið nokkur heildsölufyrirtæki á byggingavörumarkaði í Danmörku.
Húsasmiðjuverslanir eru 16 talsins og eru Blómavalsútibú í sjö þeirra. Jafnframt er rafiðnaðarverslunin Ískraft með fjögur útibú.
Hjá Húsasmiðjunni starfa um 500 starfsmenn vítt og breytt um landið sem hafa margskonar bakgrunn eins og pípari, blómaskreytir, bókari, smiður, viðskiptafræði, grafískur hönnuður, múrari og fleira og fleira.
Húsasmiðjan býður upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum mikla áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.

Öflugur söluráðgjafi í verkfæradeild í nýrri verslun Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ
Vilt þú vinna á lifandi og skemmtilegum vinnustað?
Við leitum að öflugum og þjónustulunduðum sölumanni/ráðgjafa með góða þekkingu og brennandi áhuga á verkfærum, skrúfum og festingum Í nýrri og glæsilegri verslun Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ. Viðkomandi mun sjá um þjónustu við fagfólk og fólk í framkvæmdum – og bera ábyrgð á verkfæradeild ásamt skrúfu- og festingadeild.
Um er að ræða mjög skemmtilegt starf og tækfiæri til að taka þátt í að byggja upp mjög öfluga verkfæradeild í nýrri og glæsilegri verslun Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf og sala til fagfólks og einstaklinga í framkvæmdum
- Afgreiðsla pantana
- Umsjón með verkfæradeild og skrúfu- og festingadeild (framsetning, röðun og daglegur rekstur)
- Aðstoð við vöruval og lausnir tengdar verkfærum, skrúfum og festingum
- Vinna með sterku vöruframboði og þekktum vörumerkjum, m.a. DeWalt, Milwaukee, Makita, Stanley og fleiri
- Almenn umhirða verslunar
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi - iðnmenntun kostur
- Er með framúrskarandi þjónustulund og lausnamiðað hugarfar
- Reynsla af sölustörfum er kostur
- Þekking á verkfærum, festingum og skrúfum er mikill kostur
- Hefur brennandi áhuga á verkfærum – það er skilyrði
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Metnaður til að takast á við krefjandi verkefni
- Stundvísi, jákvæðni og heiðarleiki í starfi
- Gott vald á íslensku
- Almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
- Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla.
- Aðgangur að orlofshúsum.
- Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fræðslustyrkur.
- Afsláttarkjör í verslunum okkar.
Auglýsing birt16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur12. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Fitjar 2, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi óskast hjá Hringdu!
Hringdu

Starfsfólk óskast/Seeking employees
S4S Premium Outlet

Síminn leitar að öflugu sölufólki!
Síminn

Sölumaður á landbúnaðarsviði
Lífland ehf.

Hvolsvöllur: Sumarstarf í timbursölu með möguleika á framtiðarstarfi
Húsasmiðjan

Viðhald og umsjón fasteigna / Property maintenance and management
Alva Capital ehf.

Hvolsvöllur: Söluráðgjafi í framtíðar – og sumarstörf
Húsasmiðjan

Sölufulltrúi á Akureyri
Avis og Budget

Þjónustufulltrúi
Deluxe Iceland

Starfsmaður á lager og í verslun
Tekk

Sölu- og þjónusturáðgjafi - fullt starf - Flügger Akureyri 🎨
Flügger Litir

VERKSTÆÐISFORMAÐUR
RST Net ehf.