Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Forstöðumaður flugstöðvarþjónustu á Keflavíkurflugvelli

Við leitum að öflugum og framsæknum einstaklingi til að gegna starfi forstöðumanns Flugstöðvarþjónustu á Keflavíkurflugvelli.


Um er að ræða stjórnunarstarf þar sem viðkomandi ber heildarábyrgð á þeirri starfsemi innan flugstöðvar sem snýr beint að farþegum. Starfið nær yfir meginþorra framlínustarfsemi félagsins og felur í sér rekstur og þjónustuveitingu á Keflavíkurflugvelli.


Undir starfssviðið falla m.a. öryggisleit farþega, áhafna, starfsfólks og farangurs, farþegaþjónusta og farþegaakstur. Forstöðumaður ber ábyrgð á að tryggja örugga, skilvirka og samræmda þjónustu, leiða stóran hóp framlínustarfsfólks og móta sterka þjónustumenningu í flugstöðinni.


Leitað er að einstaklingi með skýra stefnumótandi sýn og sterkt rekstrarvit sem getur leitt umfangsmikla starfsemi, samræmt ólíkar einingar og tryggt framúrskarandi þjónustu og öryggi í kraftmiklu og alþjóðlegu umhverfi.


Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Framúrskarandi leiðtogahæfileikar.
  • Reynsla af stjórnendastörfum úr umfangsmikilli og krefjandi starfsemi.
  • Skýr stefnumiðuð hugsun og hæfni til að leiða breytingar og umbætur.
  • Hæfni til að samræma fjölbreytta starfsemi og byggja upp sterka þjónustumenningu.
  • Mjög góð samskiptahæfni og hæfni til að starfa í krefjandi og síbreytilegu umhverfi.
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli


Isavia býður upp á vinnustað þar sem lögð er mikil áhersla á uppbyggilega fyrirtækjamenningu og fyrirmyndar aðstöðu fyrir starfsfólk.


Nánari upplýsingar um starfið veita Bjarni Páll Tryggvason ([email protected]), framkvæmdastjóri Þjónustu og rekstrar og Brynjar Már Brynjólfsson ([email protected]), mannauðsstjóri.


Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Auglýsing birt9. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar