
Landsnet hf.
Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar.Við erum líka framsækið þekkingarfyrirtæki sem býður kraftmiklu starfsfólki spennandi verkefni við aðstæður þar sem umhyggja, jafnrétti og öryggi eru í fyrirrúmi.

Verkefnastjóri/-stýra framkvæmda
VIÐ BJÓÐUM SPENNANDI FRAMTÍÐ!
Langar þig að taka þátt í að byggja upp og þróa orkuflutningskerfi framtíðarinnar?
Við hjá Landsnet leitum að öflugum verkefnastjóra/-stýru framkvæmda til að slást í hópinn með frábæru teymi sem leiðir stór og krefjandi verkefni um land allt – frá hugmynd og hönnun til verklegrar framkvæmdar.
Við leitum að einstaklingi með sterkan bakgrunn á rafmagnssviði sem hefur áhuga á að leiða framkvæmdir í flóknum og mikilvægum orkuframkvæmdum.
Hvað felst í starfinu?
Sem verkefnastjóri/-stýra framkvæmda færð þú að:
- Stýra fjölbreyttum verkefnum sem ná yfir allt ferlið – undirbúning, útboðshönnun, verksamninga, verklega framkvæmd og verklok.
- Samræma vinnu margra ólíkra aðila – sérfræðinga Landsnets, ráðgjafa, verktaka og annarra hagaðila.
- Tryggja skilvirka framvindu með góðu skipulagi, eftirfylgni og vönduðum verkferlum.
- Sjá til þess að gæði, öryggi og tímarammar haldist í verkefnum.
- Taka þátt í þróun og umbótum, bæði innan verkefna og í verklagi fyrirtækisins.
- Fá yfirsýn yfir uppbyggingu flutningskerfisins um land allt og vinna að framtíðarlausnum í orkuskiptum og sjálfbærni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf í rafmagnsverkfræði, raforkuverkfræði eða rafmagnstæknifræði.
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun, hönnun eða eftirliti með verklegum framkvæmdum.
- Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni.
- Lausnamiðað, metnaðarfullt og jákvætt viðhorf.
- Hæfni til að miðla þekkingu og stuðla að jákvæðri öryggismenningu
Fríðindi í starfi
- Samstarf við fjölbreyttan hóp sérfræðinga sem vinna að framtíð raforkukerfisins.
- Stuðning við að vaxa í starfi og bæta við þig þekkingu.
- Skemmtilegt vinnuumhverfi með aðstöðu til líkamsræktar, frábæru mötuneyti og svo margt fleira.
Auglýsing birt5. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Rangárvöllum
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Miðási 7, 700 Egilsstöðum
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í orkumiðlun
Orkusalan

Samningastjóri
Veitur

Sérfræðingur í áætlanagerð hjá Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Sérfræðingur í stjórn- og eftirlitskerfum (Control SME)
atNorth

Verkefnastjóri gervigreindarmála (AI Coordinator)
Háskólinn í Reykjavík

Sérfræðingur í stýri- og sjálfvirknikerfum (SCADA) – Samherji Fiskeldi
Samherji fiskeldi ehf.

Sala og þjónusta búnaðar, varahluta og tæknilausna
Aflhlutir ehf

Skipuleggjandi viðhaldsverkefna
Rio Tinto á Íslandi

Söluráðgjafi glugga- og sérlausna
Húsasmiðjan

Háskólakennari í byggingafræði
Háskólinn í Reykjavík

Sérfræðingur í innkaupum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Innkaupastjóri/Purchasing Manager
Nicopods ehf